Leita í fréttum mbl.is

Opnið þið bara framhaldsskólana!

Elísabet læknir sem var rekin fyrirvaralaust úr starfi á LSH eftir að tjá sig um einangrun unglinga, smit barna og unglinga, andlitsmaska og fleira hafði þetta að segja útvarpinu í morgun. 


mbl.is Foreldrar verði ekki leiðinlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Vandinn er ekki börnin sjálf, þau eru sögð veikjast ekki alvarlega, heldur að þau bera smitið heim.  Foreldrar eru mishrifnir af því að veikjast eða sæta sóttkví þegar þeir þurfa að vinna fyrir heimilinu - og börnunum, auk þess að sjá um alla aðdrætti, fyrir börnin líka.
Engin aðstaða er til þess að koma upp heimavistarskólum fyrir börnin.

Kolbrún Hilmars, 4.11.2020 kl. 16:00

2 Smámynd: Sigurður Antonsson

Hreinskilið viðtal við Elísabetu Guðmundsdóttur læknir á Vísir um mál sem varða okkur alla. Hvernig almenningur kemur að víðtækum aðgerðum sem heilbrigðisyfirvöld stjórna ásamt Þríeykinu, fjölda starfsmanna og lögreglu.

Frásögn hennar er áminning um það hve skammt við erum kominn á leið þegar fámennri stjórn er gefið nær alræðisvald til að ráskast með fólk á tímum sóttvarna. Fara með úr einum stað í annan börn og foreldra í lögreglubílum til að setja í einangrun og sóttkví. Aðgerðir sem minna á sögur frá einræðisríkjum á borð við Austur-Þýskaland og Norður Kóreu.

Það tekur eflaust marga daga fyrir marga að vinna sig út úr þessu öllu sem kemur fram í viðtalinu. Eins og þú og fleiri hafa sagt eru börn og ungmenni sem þurfa að bera grímur og sætta einangrun heima við í mestri hættu við að hljóta skaða af. Einkum hreyfingaleysi og fjarlægð frá íþróttum og líkamsrækt.

Heimavistaskólar hjálpa ekki, þeir eru ekki lengur í kerfinu og þá væru eflaust hamlandi takamarkanir þar. 

Sigurður Antonsson, 4.11.2020 kl. 20:53

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Skólarnir eru opnir á hinum Norðurlöndunum. Þeir eiga allt eins að geta verið opnir hér.

Þorsteinn Siglaugsson, 4.11.2020 kl. 21:01

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það sem fyllir mann mesta viðbjóðnum er hvernig ráðist er á börnin, þau pínd til að ganga með grímur allan liðlangan daginn, skólastarfið skert, tómstundastarf bannað. Allt einvörðungu vegna þess að þessir einstaklingar sem bera ábyrgð á að stýra heilbrigðiskerfinu standa sig ekki betur en svo að þeir smita 100 veikburða gamalmenni af því að þeir ráða ekki við að viðhafa einföldustu sóttvarnir inni á spítalanum.

Þeirra eigið ábyrgðarleysi og kæruleysi verður þeim tilefni til að ráðast á börn landsins. Og reyna svo að ljúga sig út úr ósómanum. Ég get ekki að því gert, en mér finnst þetta einfaldlega vera hræsnisfullir og fyrirlitlegir einstaklingar. 

Þorsteinn Siglaugsson, 4.11.2020 kl. 23:31

5 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Þorsteinn, það er verið skoða möguleikann á að stefna ríkinu v. grímuskyldu.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 4.11.2020 kl. 23:33

6 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

á skólabörn sem sagt.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 4.11.2020 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband