Leita í fréttum mbl.is

Körfuboltamaðurinn Jonathan Isaac vill ekki fara bólusetningu

Tímaritið Rolling Stones birti nýlega grein sem segir frá hinum 24 ára körfuboltaleikmanni Jonathan Isaac en hann spilar með Orlando Magic í NBA deildinni. Tímaritið talar um samsæriskenningar í búningsklefunum, "anti-vaxxers," súperstjörnur sem eru að reyna forðast Covid bólusetningu. 

Hér svarar Isaac umfjöllun blaðsins í viðtali og segir blaðið hafa gefið ranga mynd af sér. Ég er ekki á móti bóluefnum, ekki á móti lyfjum, ekki á móti vísindum. Ég komst ekki að minni niðurstöðu varðandi þessa bólusetningu með því að lesa sögu blökkumanna eða með því að horfa á Donald Trump á blaðamannafundi. Ég ber mikla virðingu fyrir öllu heilbrigðisstarfsfólki."

Hann segir jafnframt að bólusetningar eigi að vera val hvers og eins og að engan skuli þvinga eða neyða til að fara í bólusetningar. Ég skammast mín ekki fyrir að segja að  mér líður ekki vel með að taka þetta bóluefni á þessari stundu og þegar kemur að því að setja lyf í líkamann á það að vera persónuleg ákvörðun hvers og eins." 

En þessa dagana er mikil bólusetningarherferð í gangi í Bandaríkjunum og mörgu heilbrigðisstarfsfólki sem ekki vill láta bólusetja sig verður sagt upp störfum á næstu dögum, til dæmis í New York ríki.


Það verður að teljast nokkuð sérstakt að í miðjum heimsfaraldri skuli fjölda heilbrigðisstarfsmanna verið sagt upp störfum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband