Leita í fréttum mbl.is

Gangi þér vel með þetta Macron - Frakkarnir komnir út á götu - ,,Liberté, liberté..."

liberteForseti Frakklands heldur að hann komist upp með skyldubólusetningu heilbrigðisstarfsfólks í landinu.
Láti það ekki fullbólusetja sig fyrir haustið á það á hættu að fá ekki greidd laun. Eins ætlar forsetinn að setja þá skyldu á, að til að komast inn í verslanir, veitingastaði, bíó, lestar o.fl. þurfi fólkið að framvísa heilsupassa (sprautuvottorði) eða neikvæðu PCR-prófi.

Ekki nema 36% Frakka eru fullbólusettir og því er langt í að ná hinu ómögulega hjarðónæmi sem við Íslendingar náum ekki einu sinni með 90% þátttöku. En gangi Macron vel með þetta plan sitt. Frakkar eru vanir að flykkjast út á götur bara ef mjólkin eða bensínlítrinn hækkar eitthvað smávegis.

frakkarHvernig haldið þið að þetta verði nú? Þetta er byrjað; hér má sjá myndbönd af mótmælendum sem eru að reyna að brjótast inn í stjórnarbyggingar ,lögreglan beitir táragasi, og margmenni á götum (svipað og fyrir utan Laugardalshöllina hér). Meira hér. Það er skoska fjölmiðlakonan Gillian McKeith sem birtir þessar fréttir á Twitter.

Ekki má gleyma að minnast á boðuð mótmæli í London 19.júlí. „Við stöðvum þetta núna" (Ó guð hvað mig langar að fara - Liberté, liberté eða nei, freedom, freedom...!)

 

endthisnow


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þvingaðar aðgerðir í Belgíu.

Meðfylgjandi myndband var tekið fyrir tveimur dögum í einu úthverfi Brussel-borgar þar sem nánast eingöngu búa innflytjendur frá Afríku og víðar.

Ómerkt hvít rúta ekur inn í hverfið og út úr henni stíga "starfsmenn" sem allir eru af sama  uppruna, bera armband Rauða krossins, og reyna með góðu eða illu að ýta gangandi vegfarendum inn í vagninnn til þess að láta "bólusetja sig" 

Þegar þeir verða varir við myndatökumanninn, þá er skrattinn laus.

Hvenær mun Rauði Kross Íslands, sem hefur fúslega tekið þátt í glæpnum hér á landi alveg frá upphafi, taka á leigu slíka rútu og göslast út um sveitir og fáfarna staði landsins og neyða þá sem eftir eru til þess að láta dæla óþverranum í sig?

https://twitter.com/i/status/1414912005958471683

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 15.7.2021 kl. 11:44

2 identicon

Í þessu viðtali við Dr. Michael Yeadon fyrrverandi aðstoðarforstóra hjá Pfizer, segir hann að hann sjái ekki annað en að Covid 19 hafi verið risastór svikamylla og markmiðið sé að innleiða Covid vegabréf sem mun leiða til skerðingu mannréttinda í gegnum "medical tyranny". 

https://www.bitchute.com/video/MuhI7C2QhqSq/?fbclid=IwAR1l5xr0WB9R47hxFxPGrW6PRCkDQ6XtBFLOLiHhHGe5MHHc5wJgqkjmwB0

Ef lengra er horft fram í tímann þá er núna verið að þróa "central bank digital currency", það á semsagt að útrýma lausafé og gera allt rafrænt og ef horft er til Kína (sem Klaus Schwab er óendanlega hrifinn af) þá vitum við að það er hægt að slökkva á aðgengi fólks af sínum peningum ef þeir gerast andófsmenn, og býður þetta upp á mikla möguleika fyrir yfirvöld að stjórna almenningi eins og þeim sýnist. Það myndi vissulega tengjast rafrænu skilríki þín sem tengjast Covid skilríkin. Þetta er verið að þróa víða erlendis (Fedcoin USA, Britcoin, Eurocoin).

 

Bragi Sigurdsson (IP-tala skráð) 15.7.2021 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband