Leita í fréttum mbl.is

Bólusetningaráróður í grunnskólum landsins!

brainwashing.jpgÞetta er hluti úr pósti sem sendur var á foreldra þriðja bekkjar í a.m.k einum af grunnskólum landsins. Sýningin verður 3.júní.

Í ár horfa börnin á mynd sem fjallar um sögu og mikilvægi bólusetninga fyrir börn og hvers vegna það er mikilvægt að tryggja að öll börn fái slíka vörn gegn lífshættulegum sjúkdómum. Ævar Þór Benediktsson, sendiherra UNICEF fær hjálp frá Þórólfi sóttvarnarlækni og Nadíu Lóu, formanni ungmennaráðs UNICEF á Íslandi, til að ræða þetta áhugaverða málefni."

Er þetta fræðsluefni tengt námi 9 ára barna? Nei varla, þau eru ekki að læra líffræði, eðlisfræði, efnafræði, sjúkdómafræði eða annað sambærilegt á þessum aldri. 

Nú má vera að myndin fjalli um bólusetningar almennt og ekki einu orði minnst á Covid-19 bóluefnin, en tímasetningin er áhugaverð og það að sóttvarnarlæknir verði til aðstoðar. 

Pfizer hefur nýlega fengið neyðarleyfi fyrir 12-15 ára í Bandaríkjunum. Í frétt mbl.is um málið kemur fram: Þar gætu Banda­ríkja­menn þó glímt við sama vanda­mál og hef­ur komið upp í bólu­setn­ingu eldri hópa, þ.e. að sann­færa fólk um að þiggja bólu­efnið. Sam­kvæmt nýrri könn­un tel­ur aðeins rétt rúm­ur helm­ing­ur for­eldra lík­legt að þau muni láta bólu­setja börn sín um leið og það stend­ur til boða."

Pfizer og Moderna eru einnig byrjuð að prófa lyfin á börnum og ungabörnum. AstraZeneca líka en rannsóknin var stöðvuð tímabundið a.m.k., og Janssen er byrjað að prófa á unglingum.

Ef minnst verður á sjúkdóminn Covid-19 og bólusetningar gegn honum á sýningardaginn, verða börnin ekki örugglega upplýst um að þau séu ekki í hættu og að ekkert barn eða ungmenni á Íslandi hafi þurft að fara á spítala vegna sjúkdómsins? Og eins og Kári Stefánsson sagði í mars 2020: Skepnan hlífir börnunum okkar", börn og unglingar smitast síður en fullorðnir og veikjast minna.

Fleira sem mætti upplýsa krakkana um ef Covid berst í tal eða verður hluti af myndinni:

Landlæknir Breta sagði í ágúst 2020 að þau börn sem létust úr Covid á Bretlandi hafi öll verið alvarleg veik fyrir.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir sjúkdóminn hættulegan þeim gömlu og veiku. Flestir aðrir fá væg eða miðlungs einkenni.

Landlæknisembættið - eru börn og unglingar í hættu?

Hlutfallslega fá smit af COVID-19 greinast hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri, flest börn fá væg einkenni og einnig benda upplýsingar til að börn smiti sjaldan aðra þó það geti gerst og þá sérstaklega innan heimilis. Allir geta samt sýkst af kórónuveiru og þó mjög lítið sé um alvarlegar sýkingar meðal barna er þeim þó lýst. 

Við vitum að það er stefna íslenskra stjórnvalda og yfirvalda víðsvegar um allan heim að bólusetja sem flesta við Covid. Íslenska ríkið hefur tryggt sér 1,4 milljónir skammta.

Uppfært: Var að sjá þessa frétt á rúv frá 30. apríl um málið. Jú, jú þetta er bullandi hræðsluáróður. Börn geta dáið...." 

 

 


mbl.is Pfizer samþykkt í Evrópu fyrir 12-15 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband