Leita í fréttum mbl.is

Landlæknir Breta skýrir veiruhættuna svona....

witty,,Sóttvarnarlæknir fer fram á að ákvörðun hans um að fólkið sæti sótt­kví á sótt­kví­ar­hót­eli verði staðfest. Það sé mat hans og ráðherra að aðgerðin gangi ekki lengra en nauðsyn­legt er til að hefta út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar og vernda lýðheilsu."
 
Svona lýsir landlæknir Breta, sem einnig er faraldsfræðingur, pestinni: 
 
,,Most people will not get this virus at all. Of those who get symptoms, the vast majority will have a mild or moderate disease. The great majority of people, even in the highest risk groups, will not die."
-Chris Whitty Mars 2020."
 
Hljómar þetta eins og stórhættulegur heimsfaraldur og hvernig kemur þessi lýsing heim og saman við allar skelfilegu fréttirnar sem hafa borist frá Bretlandi?
 
Svona hljóðar lýsing Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á sjúkdómnum:
"Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment.  Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness."
 
Og svo ein staðreynd héðan af Íslandi. Ekkert barn eða ungmenni hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna Covid, ekkert. Ekki heldur af breska afbrigðinu. Ekkert barnanna í Laugarnes-eða Laugalækjaskóla er veikt. Núll.
 
Önnur staðreynd. Búið er að bólusetja gamla fólkið. Um það snérust sóttvarnaraðgerðir í upphafi, verja þá gömlu.
 
Einn liggur á spítala vegna Covid, og það er skipverji á súrálsskipi frá Brasilíu. Hann er sagður vera með brasilíska afbrigðið sem Brasilíubúar kannast sjálfir lítið við.
 
Jón Ívar læknir hefur skoðað gögn frá Noregi um spítalainnlagnir barna sem sýna að börnum stafi ekki hætta af breska afbrigðinu. 
 
Ef breska afbrigðið væri jafn hættulegt og sóttvarnarlæknir og landlæknir halda fram, sem segjast styðjast við rannsóknir frá Noregi, hefði til dæmis forsætisráðherra Noregs sem er alltof feit og þar af leiðandi í áhættuhópi ekki verið með partý og brotið reglurnar.
 
Það hefur verið áberandi hversu margir ráðamenn og stjórnmálamenn í heiminum hafa brotið sóttvarnarreglur. Kannski vegna þess að þeir vita hver hin raunverulega hætta er. Þetta er oft sama fólkið og heldur uppi hræðsluáróðri sem er í engum takti við hættuna. 
 
 
Uppfært: skv. þessari frétt viriðst skipverjinn sem lá inni vera útskrifaður. 
 

mbl.is Þórólfur hefur skilað inn kröfugerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek það strax fram að ég er fremur í sóttvarna"liðinu", en fylgist þó með bloggpistlum þínum af þó nokkurri athygli og finnst margt vera umhugsunarvert sem þú hefur verið að benda á.

Er sem sagt opinn fyrir rökum.

Enn finnst mér þó vanta að þú útskýrir betur hvert þú teljir vera helsta markmiðið með þessum hörðu aðgerðum? 

Er það eitthvert yfirþjóðlegt agenda, og ef svo er, að þínu mati, hverra þá?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.4.2021 kl. 17:12

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Hæ Símon, við erum öll í einhverskonar sóttvarnarliði. Hver vill veikjast eða smita aðra, enginn sem ég þekki. En ætla ekki að þykjast vita hvert markmiðið með þessum aðgerðum er. En, follow the money, klikkar sjaldnast, hver er að hagnast.  Var að skrifa þessa. Manstu svínaflensuna og hver græddi þá?
https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2263162/

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 4.4.2021 kl. 17:50

3 identicon

Takk fyrir svarið Þórdís.

Reikna með að þú hafir rétt fyrir þér að "follow the money" leiði til svarsins.  Og hún læðist reyndar stundum að manni hugmyndin um að þeir sem mest græða á þessu ástandi eigi jafnframt ríkastan þátt í því.

Gleðilega páska.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.4.2021 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband