Leita í fréttum mbl.is

Þórólfur, Þórdís og Þórdís sýna fordæmi - afþakka bólusetningu!

modernaþbenHeilbrigðisstarfsfólk fékk sent boð um að mæta í bólusetningu í Laugardagshöll á föstudaginn síðasta. Boðið var upp á Moderna.

Fram kom í fréttum að sóttvarnarlæknir hefði fengið boð um að mæta en afþakkað. Hann sagðist vilja sýna gott fordæmi og láta aðra sem væru að vinna með sjúklingum, ganga fyrir. Mikið offramboð virðist hafa myndast af efninu sem hlýtur að þýða að töluvert margir heilbrigðisstarfsmenn hafi ekki þegið boðið. Heilsuvera sendi út fjölda sms - skilaboða til þeirra sem eru á skrá sem sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, fótasnyrtifræðingar o.fl. „Aukaskammtar - Fyrstur kemur fyrstur fær." Brunaútsala á Moderna sem læknar og hjúkkur vildu ekki.

Skilaboðin sem meðfylgjandi myndir sýna fékk vinkona mín Þórdís H. Benediktsson sem er kennari og skráður sjúkranuddari en hefur ekki starfað sem nuddari í rúman áratug. Eins hafði hún fengið boð um að mæta í Pfizer eftir helgi. Þórdís hefur ekki nokkurn áhuga á að taka þátt í tilraunastarfsemi lyfjafyrirtækjanna vegna veirupestar sem flestir fá væg einkenni af sbr. til dæmis skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Þórdís sem ekki starfar með sjúklingum og hefur ekki starfað sem nuddari í langan tíma fékk sem sagt boð um þiggja ósótta skammta sem Þórólfur sóttvarnarlæknir og augljóslega fleiri heilbrigðisstarfsmenn vildu ekki. Líftæknifyrirtækið Moderna hefur aldrei áður framleitt bóluefni og Moderna er það lyf sem hefur leitt til hlutfallslega flestra alvarlegra aukaverkana hér á landi. Þórdís vildi sýna fordæmi og ekki þiggja bóluefni á tilraunastigi sem ENGINN veit hver langtímaáhrif eru á.

Sjálf hafði ég afþakkað bólusetningu með simpansaveirubóluefninu frá AstraZeneca fyrir nokkrum vikum. Vildi meðal annars sýna gott fordæmi með því að þiggja ekki ófullrannsakað lyf sem aldrei hefur verið notað á mönnum fyrr og er þar að auki ekki hefðbundið bóluefni. Nokkrum dögum síðar var gert hlé á bólusetningu með AstraZeneca vegna fjölda tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir, þar á meðal hér á landi. Stuttu síðar var ákveðið að bjóða efnið eldra fólki sem áður hafði ekki mátt fá það. Tilkynning um dauðsfall sem möguleg aukaverkun vegna AstraZeneca er að minnsta kosti ein hér á landi en þeirri frétt virðist hafa verið haldið frá almenningi í nokkurn tíma, eða um það bil tíu daga.

pfizerþbenÞórólfur sagðist vilja bíða þar til röðin kæmi að honum í aldri. Aftur á móti var það algjör óþarfi, nóg var til af Moderna og flestir þeir sem boðaðir voru í afgangana eru yngri en hann. Athyglisvert er að svo mikið afgangsefni hafi verið daginn sem heilbrigðisstarfólk átti að mæta í Laugardagshöllina. Skyldi landlæknir hafa mætt? Varla. Annars hefði það líklega komið í fjölmiðlum eins og með Kára. (ekki komið svar við fyrirspurn til hennar).

Sóttvarnar-og landlæknir stýra sóttvarnaraðgerðum og hvetja almenning til að þiggja boð í bólusetningu þegar það býðst, þar á meðal ungt fólk, allt niður í 18 ára sem starfar á hjúkrunarheimilum. 18 ára eru ekki í áhættu vegna Covid (og búið er að verja gamla fólkið), en Þórólfur og Alma eru komin í þann aldurshóp sem telst áhættumeiri. Hvers vegna mættu þau ekki fyrst nóg var til? Vildu þau ekki Moderna? Á frekar að bjóða það fólki sem ekki einu sinni starfar í heilbrigðisgeiranum? Er þetta ekki annars stórhættuleg drepsótt þó að hér hafi reyndar enginn dáið eða legið á spítala vegna sóttarinnar í marga mánuði (fyrir utan einn skipverja frá Brasilíu sem var á sjúkrahúsi í nokkra daga.)

Í öðrum ríkjum, hafa ráðamenn sýnt fordæmi og tekið bóluefnið. Til dæmis ákvað heilbrigðisráðherra Ástralíu að taka AstraZeneca í hvatningarskyni fyrir aðra. Ráðherrann endaði reyndar á sjúkrahúsi daginn eftir með húðsýkingu (a.m.k. opinbera skýringin)! Hér á landi virðist þurfa minni hvatningu, nema þá helst meðal heilbrigðisstarfsfólks sem margt hefur aðgang að betri upplýsingum en hinn almenni borgari sem hefur hlustað á hræðsluáróður þríeykisins og Kára Stefánssonar í heilt ár og byggir sínar ákvarðanir á því.

Það er því frekar aumingjalegt af sóttvarnarlækni að hafa ekki mætt í höllina til að verja sig sem fyrst gegn veirunni sem hann segir vera alveg stórhættulega og liggja í laumi hér og þar! 


Bloggfærslur 11. apríl 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband