Leita í fréttum mbl.is

Ákall til Breta að fara í sprautu!

auglýsingBretland var það land í Evrópu sem sagt var að ætti í mestum vanda með farsóttina. Önnur ríki notuðu Bretland oft sem dæmi til réttlætingar á hörðum reglum og útgöngubanni. Við sáum fjölda þannig frétta í íslenskum fjölmiðlum. Við sáum aftur á móti ekki frétt þar sem sagt var frá því að dánartölurnar hafi verið ýktar, sjá hér. Hvers vegna ekki?

Það hlýtur því að skjóta skökku við að reka þurfi Bretana í sprautu gegn þessum stórhættulega heimsfaraldri. Ekki vilja þeir deyja eða drepa aðra! Hvers vegna fara ekki fleiri viljugir í sprautuna? Er skýringin kannski sú að Bretar upplifa annan raunveruleika heldur en fjölmiðlar og yfirvöld sýna? Svona eins og hér heima, þar sem verið er að stinga fólki í sóttvarnarfangelsi, en ekki nokkur hræða hefur látist af covid í marga mánuði og varla nokkur maður á spítala í marga mánuði. Og börnin lítið eða ekkert lasin af breska afbrigðinu! Hverjir eru að flytja okkur falsfréttir og hverjir ekki?

Og sjáið þessi nýju gervivísindi frá NHS á Bretlandi; miklu öruggara að æfa ónæmiskerfið í að verja sig með bóluefnum heldur en að sýkjast náttúrulega. Það er nefnilega þannig í dag, að þeir sem segjast treysta eigin ónæmiskerfi eiga það á hættu að vera kallað samsærisfólk. Fólk sem efast um að ungt og hraust fólk, hvað þá börn eigi að fá bóluefni á tilraunastigi, er ráðlagt að leita sér hjálpar, já bara tékka sig inn á geðveikraspítala og sturta í sig valíum! Dómarar sem fara að lögum, eru einmanna vesalingar skv. forstjóra erlends fyrirtækis, samstarfsaðila AstraZeneca.

Spáið í þennan nýja raunveruleika, þvílík þvæla og úrkynjun og brenglun á vísindum. WHO hefur nýlega breytt skilgreiningu sinni á hjarðónæmi. Fyrir ekki löngu var hægt að ná fram hjarðónæmi bæði með bólusetningu og náttúrulegri sýkingu. En núna, aðeins með bóluefnum (og það bóluefnum sem þarf stöðugt að endurnýja fyrir nýjum afbrigðum),sjá mynd neðar. 
Og ef maður fylgist með Bretunum á twitter sér maður alls konar svona fréttir, já allir veikir eða nei ananrs Covid deildin tóm.
NHSherdimmunitywho


mbl.is Noregur staðfestir bóluefnalánið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt þrefalt afbrigði á Indlandi fundið!

triplemutantFrelsið er ekki alveg handan við hornið og Laugardagshöllin verður líklega bóluefnamiðstöð næstu árin og hótel landsins nýtt sem fangageymslur. Fyrir ca. þremur vikum var sagt frá tvöföldu afbrigði sem fannst á Indlandi sem nýlega hefur líka fundist á Bretlandi. Nú er komið nýtt þrefalt indverskt afbrigði, hvorki meira né minna, sem bóluefnið sem verið er að sprauta í landsmenn þessa dagana virkar líklega ekki gegn og því þarf nýtt fyrir þetta þrefalda í einhverjar vikur þar til fjórfalda afbrigðið finnst....

Þúsundir landsmanna bíða með öðrum orðum í röðum eftir að fá bóluefni sem er þegar möguelga gagnslaust! 

Á sama tíma og tvöföld og þreföld afbrigði spretta fram og smittölur í hæstu hæðum, fjölmenna Indverjar enn til að baða sig o.fl. Bara eins og enginn heimsfaraldur sé í gangi! Og þrátt fyrir fáa túrista á Goa ströndinni, þá eru Indverjar þar í fríum, skv. vinum mínum sem þar starfa.
 

mbl.is „Þeir geta hæglega borið veiruna áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. apríl 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband