Leita í fréttum mbl.is

Ég sakna inflúensunnar!

sameEkki er vitað til þess að hin árlega inflúensa hafi áður horfið, og það um allan heim nema kannski í Kína þar sem Covid-19 er horfið. Við tók farsótt sem er með sömu einkenni og forveri hennar, fyrir utan kannski þetta með lyktar-og bragðskynið (nánar um það neðar). Það kom alltaf í fréttum þegar flensan kom til landsins. Maður las fréttina og fletti svo í rólegheitum yfir á næstu blaðsíðu eða skrollaði niður, eftir að internetið kom. Þessi frétt um flensu kom til dæmis í Vikublaðinu árið 2007: 

Nokkrar fjölskyldur á Akureyri greindust með inflúensu um helgina. Þar með er þessi árvissi faraldur staðfestur og búast má við einhverjum veikindum á næstu vikum....Fólk verður almennt mun veikara af inflúensu en kvefpestum og veikindin taka lengri tíma. Heilu fjölskyldurnar eða bekkjardeildirnar leggjast í einu...Ekki er nauðsynlegt að leita til læknis til staðfestingar á inflúensusmiti...

flucovid

Maður tók stundum eftir því í vinnunni að Magga á næsta borði eða Guðmundur væru hálfræfilsleg, kannski að fá sér heitt te inni á kaffistofu. Svo mættu þau jafnvel ekki til vinnu næstu daga. Komu svo aftur, hálfdrusluleg ennþá, með trefil um hálsinn eða eitthvað. Mæður voru líka oft frá vinnu vegna barnanna. Síðan hurfu aðrir starfsmenn í einhverja daga og svona gekk þetta fyrir sig. Þegar fólkið mætti aftur til vinnu spurðu samstarfsmenn stundum: Ertu búinn að jafna þig?" Og svo var farið að ræða eitthvað annað. 

Inflúensan er hættulegur sjúkdómur og getur dregið þá gömlu og veiku til dauða og sumir glíma við langvarandi eftirköst.

En þetta var aldrei þannig að maður hrykki í kút við fréttir af komu flensunnar eða við að sjá samstarfsmenn sína eitthvað slappa eða hóstandi. Ekki krafðist maður þess heldur að þeir hypjuðu sig heim eða í sýnatöku. Og aldrei var það þannig að allir á vinnustaðnum væru sendir heim eða látnir leita til heilsugæslunnar í rannsókn til að kanna hvort þeir væru kannski með inflúensuna án þess að vita af því, og þá hvaða afbrigði. (Spáið í það, maður hefur stundum fengið flensu en ekki haft hugmynd um hvers lenskt afbrigðið væri). Og aldrei reyndi maður að rekja sína inflúensu til ákveðins aðila. Fólk var einfaldlega ekki hrætt við þennan árlega faraldur, hann var bara hluti af lífinu. Enginn var með grímu fyrir andliti eða spritt á borðum. Og fólk sat þétt saman á kaffistofunni, líka þeir sem voru eitthvað slappir. Þeir voru ekki einu sinni sendir yfir á næsta borð. Það voru heldur ekki daglegar fréttir af fjölda smita eða viðtöl við veikt fólk. Landið var opið og fólk ferðaðist á milli staða, þeir sem voru veikir héldu sig heima, hinir voru í vinnu eða skólanum.

En þetta eru breyttir tíma, komin ný pest og flensan horfin, eða a.m.k. hefur ekkert flensutilfelli greinst frá því í apríl 2020 skv. landlæknisembættinu. Einkennin af Covid-19 eru þó hin sömu (hiti, beinverkir, hósti, slappleiki, stundum kvef o.s.frv.) og læknar eiga oft í erfiðleikum með að greina á milli þeirra. En það er þetta með lyktar-og bragðskynið sem virðist öðruvísi. En þekkist þó samt sem áður með inflúensuna.

Ég fann aftur á móti frétt um rannsókn eða könnun í National Geographic þar sem fram kemur að 60% þeirra sem höfðu greinst Covid jákvæðir hefðu misst lyktar-og bragðskyn en jafnframt voru 18% þeirra sem höfðu reynst Covid neikvæðir sem geindu frá því sama. Þetta er eitthvað sem er áhugavert að skoða og fylgjast með frekar.

En ég sakna flensunnar, það var eitthvað svo normalt að vera veikur og hressast svo, sjá aðra veikjast og hressast. Enginn forstjóri erlends fyrirtækis að hræða líftóruna úr fólki, krefjast þess að láta loka landinu og loka fólk inni, annars gæti maður drepist. Engar dánartilkynningar eða sjúkraflutningar vegna inflúensu þrátt fyrir að 10-20 manns deyi árlega af völdum hennar. Fólk dó úr elli. Og aldrei heyrði maður að flensutölur hefðu verið ýktar, það var frekar að læknar reyndu að róa mannskapinn.

 

mbl.is 21 smit innanlands – þrjú utan sóttkvíar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. apríl 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband