Leita í fréttum mbl.is

Þarf að sannfæra Bandaríkjamenn - þeir sem fóru svo illa út úr faraldrinum?

cdcrate,,Í frétt frétta­veit­unn­ar AP seg­ir að stjórn­völd­um í Banda­ríkj­un­um bíði nú það verk­efni að sann­færa þann hluta þjóðar­inn­ar sem er síður áfjáður í að láta bólu­setja sig. Nokk­ur mun­ur er á bólu­setn­ing­ar­hlut­föll­um eft­ir ríkj­um."

Þetta er umhugsunarvert. Í landi sem á að hafa farið hræðilega illa í heimsfaraldri þarf að sannfæra fólk að fara í bólusetningu gegn sjúkdómnum. "Let that sink in."

Eða var þessi háa tala kannski lygi? Sjá hér.

Fram kom í seinni fréttatíma rúv sl. þriðjudagskvöld að aðeins 6% Rússa væru bólusettir og að líkleg ástæða væri lítill hvati þar sem lítið hefði verið um lokanir og sóttvarnaraðgerðir. "Let that also sink in." Er verið að loka fólk inni og takmarka frelsi þess og líf til að fá það til að taka bóluefni á tilraunastigi?

Er sjúkdómurinn eitthvað minna hættulegur í Rússlandi en í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar?

Hér heima þarf engan eða fáa að sannfæra. Sóttvarnarlæknir, landlæknir og borgarstjóri segjast ekki vilja, þrátt fyrir boð, fara strax í bólusetningu. Og fólk æpir yfir sig af hrifningu; „þið eruð svo frábært fordæmi." Talandi um sértrúarsöfnuð! Læknar vilja fæstir taka tilraunalyf fyrir sjúkdómi sem yfirgnæfandi líkur eru á að lifa af. Og síðan eru þeir ekkert sérstaklega hræddir við veikina, annars hefði þetta fólk drifið sig í Höllina við fyrsta útkall. Það var nóg til af efni og slatti fór til spillis daginn sem heilbrigðisstarfsfólk átti að mæta.

Look at what they do not what they say...


mbl.is Helmingur Bandaríkjamanna fengið bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragga nagli og sóttvarnirnar - ,,af misjöfnu þrífast börnin best?"

maskme„Kórónaveiran fer greinilega ekki í manngreinarálit og tók sér bólfestu í Naglanum sem hefur státað sig gegnum tíðina af að vera annálað hreystimenni sem fær varla hor í nös,“ segir Ragga nagli á Facebook síðu sinni.Ragga segir að þrátt fyrir grímunotkun, óhóflegan handþvott, stöðuga sprittun, tveggja metra reglu, olnbogaskot og félagslega einangrun hafi henni samt tekist að næla sér í Covid. Hún sé nú að takast á við höfuðverk, háan hita, beinverki og slappleika."

Ég þekki ekki þessa konu en fannst áhugavert það sem hún segir um nánast manískar sóttvarnir. Þetta barst í tal meðal félaga minna í gær, þar sem við sátum þétt saman, grímu-og sprittlaus og höfum haft þann háttinn á síðustu ca. 10 eða 15 laugardaga. Um er að ræða hóp fólks sem á einn eða annan hátt tengist viðspyrnu öfgafullra sóttvarnaraðgerða stjórnvalda. Innsti kjarni er ca. 100 manns. Það sem er áhugavert er að ekkert okkar virðist hafa fengið covid, að einum undanskildum sem hafði víst fengið veiruna en ekki komist að því fyrr en síðar þegar hann fór í mótefnamælingu. Hann sagði að einkennin hefðu verið væg. Maður í eldri kantinum sem hresstist fljótt.

Spurning hvort við séum komin með mótefni án þess að vita, því við eigum það flest sameiginlegt að hunsa þessar aðgerðir eftir fremsta megni. Teljum það einfaldlega varasamt að hlýða þessum fíflagangi stjórnvalda sem ganga lengra og lengra því nær sem við komumst upphaflega markmiðinu, að verja gamla fólkið. Sem var augljóslega bara blekking! Það eru komin ný markmið; veirulaust samfélag og hjarðónæmi sem aðeins er hægt að ná með bólusetningum, segir WHO núna. Áður var skilgreiningin sú, að einnig væri hægt að ná hjarðónæmi með náttúrulegri sýkingu. Þau breytast ört vísindin þessa dagana sbr. þetta með Þórólf og grímurnar

Eða, erum við kannski betur varin fyrst við höfum ekki vanið okkur á að blokka öndunarveginn með bréfi eða tuskum, baða okkur upp úr spritti (ónæmiskerfið þarf nefnilega bakteríur og vírusa til að haldast sterkt) og forðast annað fólk eins og heitan eldinn, út af sjúkdómi sem virðist einna helst draga til dauða þá sem eru þegar við grafarbakkann.

Þetta gæti a.m.k. verið áhugavert rannsóknarefni. Væri hægt að mæla hópinn og sjá hvort hann sé kominn með svokallað T-frumu ónæmi eða finna út hvers vegna hann veikist síður af þessum bráðsmitandi sjúkdómi?

Fólkið í hópnum á það líka sameiginlegt að vilja ekki sjá tilraunabóluefnið gegn covid og kannski getur vísindasamfélagið á einhvern hátt nýtt sér þennan hóp til rannsókna í framtíðinni. Því hefur til dæmis verið haldið fram að þeir sem taki inn bóluefnið verði líklegri til að veikjast frekar í næstu pestum. Það væri a.m.k. hægt að nota hópinn í einhverskonar samanburðarrannsókn.  



mbl.is Ragga nagli með Covid: „Krossum fingur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. apríl 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband