29.3.2021 | 22:52
Bólusettir en samt að sýna neikvætt PCR próf!
,,Gert er ráð fyrir að tilraunaverkefnið í Phuket hefjist í júlí á þessu ári. Þá þurfa ferðamenn að sýna fram á að þeir hafi fengið tvo skammta af bóluefni gegn kórónuveirunni og framvísa neikvæðu kórónuveiruprófi. Þeir munu líka þurfa að sækja smitrakningarapp í símann sinn."
Hér er dæmi um þetta hlægilega tilraunabóluefni sem aldrei hefur verið notað á mönnum fyrr og telst ekki vera bóluefni í hefðbundnum skilningi. Ef þú ert bólusettur hvers vegna í ósköpunum þarftu þá líka að sýna fram á neikvætt próf? Einmitt, því að bóluefnin koma ekki í veg fyrir smit.
Þessi svikamylla hlýtur að fara að hrynja bráðum, minnir á myntkörfulánin á árunum fyrir hrun. Áttu að vera alvöru lán í erlendri mynt en voru síðan kolólögleg lán í íslenskum krónum bundin við hina ýmsu erlendu gjaldmiðla. Tilgangurinn var að falsa gjaldeyrisstöðu landsins og velta hruni krónunnar yfir á almenning.
Opna landamærin fyrir bólusettum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 30.3.2021 kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2021 | 13:36
Hin árlega flensa er horfin - R.I.P inflúensa 800 BC - 2020
Á vetri hverjum gengur inflúensan yfir norðurhvel jarðar á tímabilinu október til mars og er hún 23 mánuði að ganga yfir. Inflúensan er skráningarskyldur sjúkdómur og birtir landlæknisembættið tölurnar reglulega. En engar tölur hafa verið birtar eftir 9. viku 2020, eða í heilt ár, enda hafa engin tilfelli greinst síðan í apríl 2020. Staðfest af landlæknisembættinu:
Sæl Þórdís
Nei, engin tilfelli inflúensu hafa greinst á Íslandi frá því í apríl á síðasta ári.
Kveðja
Maríanna
Tölurnar á myndinni hér ofar eru frá nokkrum löndum og sýna þróunina. Því hefur verið haldið fram af sérfræðingum að sóttvarnir hafi komið í veg fyrir flensusmit og það um allan heim, en ekki í veg fyrir Covid. Nú kom til dæmis ekki grímuskylda á hér heima fyrr en nokkrum mánum eftir að Covid byrjaði. Er prófað fyrir flensu á landamærunum hér heima? Nei og hefur aldrei verið gert. Samt kemur engin flensa til landsins eins og gerst hefur síðastliðin 1000 ár eða svo. Og þessar tölur eru frá Bandaríkjunum, töluverður munur milli ára, ekki satt?
Síðan fann ég þessar færslur (myndir neðar) með þeirri skýringu að Covid væri ekkert annað en inflúensa: "Offically it´s a flu strain, nothing more....". Veit að þetta eru myndir af samfélagsmiðlum og hver sem er gæti hafa skrifað þetta (er að reyna finna viðkomandi) en er einhver vísindamaður til í að mótmæla þessum skrifum hjá aðila sem í það minnsta segist vera með doktorsgráðu í veiru-og ónæmisfræðum? Hvað nákvæmlega mæla þessi PCR próf og hvers vegna þykja þau ekki mjög nákvæm? Þau gera til dæmis ekki greinarmun á virku og óvirku smiti, þess vegna þarf oft að senda þá sem greinast smitaðir á landamærunum í mótefnamælingu.
Fyrst að flensan hvarf um allan heim á svipuðum tíma og um það leiti sem Covid-19 birtist, getur verið að Covid sé ekkert annað en slæm inflúensa og að það sé ástæðan fyrir því að þessi skráningarskyldi sjúkdómur sé með núll tilfelli frá því í apríl 2020 eða nánast í heilt ár?
En eftirköstin eru svo mikil og alvarleg vegna Covid" segja menn þá. Já, en á það ekki við um flensuna líka, sjá hér. Ég á til dæmis vin sem hefur aldrei jafnað sig eftir inflúensu sem hann fékk fyrir ca. 10 árum. Vírusinn fór í hjartað" eins og það kallast. Hvað vitum við um eftirköst slæmrar inflúensu? Hvað ef það hefðu birst viðtöl við fjölda manns í fjölmiðlum sem hafa veikst af slæmri inflúensu sem dregur marga til dauða á hverju ári? Hvaða mynd hefðum við þá í kollinum af alvarleika inflúensunnar?
Hér er frá WHO fyrir 2020 og 21, flensan kom aldrei aftur eftir viku 15.
p.s. fékk athugasemd um að tölurnar á FOX myndinni gæfu ekki rétta mynd. Það má vel vera og hana má hunsa. Það er nóg annað efni sem sýnir hvarf flensunnar. Það er engin þörf á ýkjum eða röngum tölum til að sýna þessa augljósu staðreynd.
Uppfært:
Flensan virðist þó enn vera til í Kína, en Covid horfið þar:
Uppruni smitanna þriggja óþekktur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 1.4.2021 kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
Bloggfærslur 29. mars 2021
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs