Leita í fréttum mbl.is

Ekkert að óttast - segja þessir læknar í Kananda!

CanadaFlagÞessir  læknar í Kanada eru með hin ýmsu skilaboð. Börn eru ekki í hættu vegna covid, yfirgnæfandi líkur á að lifa af veikindin, smittölur gefa ranga mynd, hjarðónæmi er meira en haldið er fram. Og fyrir alla muni, hugsið vel um heilsuna. Það er ekkert að óttast. 

Enda vitum við að enginn læknir með réttu ráði myndi ráðleggja lokun skóla, fella niður leik og íþróttir, einangra fólk, hræða það og bulla út af pest sem langflestir jafna sig á, nema að þú sért orðinn mjög gamall og/eða veikburða. Annars hefði það sama verið gert í t.d. svínaflensunni sem lagðist harðar á börn en fullorðna. En nei, það var allt opið. Þeir sem voru lasnir voru heima, jöfnuðu sig og fóru aftur í skólann. 

Hér er dæmi um bilun lyfjafyrirtækjanna, þau eru að prófa þessa nýju tegund bóluefna á börnum vegna sjúkdóms sem þeim stafar engin hætta af! Enda eru fyrirtækin komin með frítt spil, ríki heims hafa tekið á sig ábyrgð vegna skaða og munu eflaust gera áfram. 

Rétt er að minna á skilgreingingu WHO eða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á Covid-19. Eru börn í hættu? Eða ungt og hraust fólk? Svarið er: Nei þau eru ekki í hættu! 
Og líka gott að rifja upp svínaflensusvindlið sem á nú eftir að fölna í samanburði við þessar stórskaðlegu aðgerðir sem  hafa verið í gangi í ár. 

p.s. fór á veitingastað í gær þar sem nú á að skrá niður nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og klukkan hvað maður var staddur á staðnum. Für ihre sicherheit, að sjálfsögðu. Það gerði ég ekki og mun aldrei gera. En var hugsað til Sjálfstæðisflokksins, hvernig ætli t.d. þingmönnum flokksins sem margir trúa enn á frelsi einstaklingsins og þola ekki njósnastarfsemi, líði með svona aðgerðir? Gefa upp nafn og kennitölu, símanúmer á veitingahúsum, kirkjum og víðar! Og já, svo kemur upp smit á veitingastaðnum og þá kemur Víðir lögga eða Rögnvaldur og má samkvæmt nýju "sóttvarnarlögunum" loka fólk inni í "sóttvarnarhúsi" vegna gruns um smit. Sjáið svo lífið í Moskvu, hjá kommúnistunum!

Í upphafi snérust aðgerðirnar um gamla fólkið. Og nú þegar það hefur verið bólusett, þá bara herða þeir tökin. Nú eru börnin í hættu eða þannig! Þeir ganga eins langt og þið leyfið þeim.

 

 

 


mbl.is Grípa til markvissra aðgerða eftir þörfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. mars 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband