Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Halldór teiknar Arnar Þór í nasistabúningi

Skopmyndateiknarar hafa oftast meira frjálslyndi til að ýkja raunveruleikann og móðga fólk, sérstaklega stjórnmálamenn. 

En það kemur fyrir að þeir séu reknir úr starfi. Dagblaðið Guardian rak t.d einn slíkan á síðasta ári. Það var teiknarinn Steve Bell, sem hefur lengi verið skopmyndateiknari. Hann á að hafa neitað að birta teikningu af Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sem gagnrýnendur sögðu að byggði á gyðingahatri.

Ástralski skopmyndateiknarinn Michael Leunig var rekinn frá blaðinu The Age árið 2021. 

cartoonHann teiknaði mynd í tengslum við skyldubólusetningar í Ástralíu á Covid-tímum. Þar er Covid-bólusetningum líkt við morðin á Torgi hins himneska friðar. Gangrýnin beinst að ríkisstjórn Ástralíu.Þá voru á síðasti ári þrír verðlauna -skopmyndateiknarar reknir á einum degi í Bandaríkjunum. Sjá nánar hér.

Í gær birti Vísir teikningu eftir Halldór af nokkrum forsetaframbjóðendum. Þar var Arnar Þór Jónsson klæddur í nasistabúning. Það má glögglega sjá ef myndir af þess konar búningum eru skoðaðar. Ekki sést í hakakrossinn á rauða borðanum á hægri handlegg en búningurinn er SS liðsforingjabúningur (þ. traditionsanzug der SS unterscharführer): Brún skyrta, svart bindi, rauður borði á vinstri handlegg, axlabelti og svartar pokaðar reiðbuxur.

ssuniform

Arnar sagði á facebook í gær að hann hafi sent kæru til siðanefndar Blaðamannafélag Íslands vegna myndarinnar. Að þarna hafi menn farið yfir strikið og brotið lög og bendir á að hann sé þarna settur í búning sem stangast á við allan hans boðskap, eða einmitt það sem hann hefur talað gegn. 

Arnar var t.d. eini þingmaðurinn sem gagnrýndi ofríki og valdníðslu yfirvalda á Covid-tímum, kallaði einnig eftir því með opnu bréfi í Mogganum 2022 (sjá neðar) að læknar myndu lýsa því yfir að Covid-sprautuefnin sem þeir vildu m.a.s. sprauta í börnin væru í raun örugg.

Enginn læknir svaraði. Arnar benti margoft á að yfirvöld hafi farið út fyrir vald sitt og brotið á fólki í nafni „öryggis“. Við vitum í dag hverslags blekkingar og lygar voru þarna í gangi. Hættan stórlega ýkt og ungt og hraust fólk sprautað með skaðlegum efnum.

Það verður því áhugavert að sjá hvaða siðanefnd BÍ segir um teikningu Halldórs í Vísi. Við vitum að Ásdís Rán er fyrirsæta og Baldur samkynhneigður og að Katrín og Sjálfstæðisflokkurinn vinna náið saman. En er Arnar Þór nasisti eða hefur hann með einhverjum hætti lýst aðdáun sinni eða stuðningi á þess konar stjórnarháttum? Hefur hann ekki einmitt talað þvert á ofríki og valdboð í samfélaginu? Er í lagi að kalla (teikna) menn nasista og þá um leið fjöldamorðingja bara í gríni? 

Hér má einnig sjá dæmi um ástralska stjórmálamenn frá því í fyrra sem hótuðu dagblaði málsókn vegna skopmyndar sem líkti þeim við nasista. 


Bréf Arnars til lækna árið 2022.

opiðbrefarnar

 

 

 

 


Forsætisráðherrann skotinn stuttu eftir að hafna "faraldurssáttmála" WHO

Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, er í lífshættu eftir skotárás.

Fico hafði nýverið hafnað opinberlega faraldurssáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) þar sem aðildarríki afsala sér fullveldi í heilbrigðismálum ef til faraldurs
kemur.

Faraldurinn gæti líka t.d. stafað af "hættunni á loftslagshamförum" og athugið að það er einnig WHO sem myndi ákveða hvar og hvenær það er "faraldur" og þá skal hlýða þeirra reglum.

Andrew Bridgen, þingmaður Bretlands, benti einnig á rétt í þessu að Fico hafi lofað að rannsaka viðbrögð ríkisstjórnar Slóvakíu við "Covid-19" og einni að hann hafi verið gagnrýninn á stríðið í Úkraínu. Hann vildi hvorki senda vopn né peninga þangað. Fico varð (aftur) forsætisráðherra Slóvakíu á síðasta ári.

Hér má sjá og heyra gagnrýni Fico á Covid-sprauturnar og WHO sáttmálann. Allir sem voru á annarri skoðun um sprauturnar sagði hann, voru álitnir hættulegir.

Sjá hér einnig færslu Bridgen þingmanns á facebook:

https://www.facebook.com/AndrewBridgenMP/posts/850465196893342


mbl.is Skotinn mörgum sinnum og í lífshættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Three loosers" styðja Katrínu

moggamynd

VíðirKári Stef og Þórólfur hafa allir lýst opinberlega yfir stuðningi við Katrínu Jakobsdóttur í embætti forseta Íslands. 

Covid-bræðurnir styðja fyrrum forsætisráðherra sem keypti rúmlega 2 milljónir skammta af gervi-bóluefnum fyrir skattfé handa ca. 370 þúsund manna þjóð með leynilegum samningum þar sem segir að ekkert sé vitað um langtíma áhrif gervi-bóluefnanna. Víðir og Þórólfur fengu jú fálkaorðu og Kári Útflutningsverðlaun Íslands fyrir erlenda fyrirtækið sitt sem heitir Íslensk erfðagreining.

Eitt gervi-bóluefnanna, Astra Zeneca, sem Kári sagði afskaplega gott og líkur á aukaverkunum næstum því engar,“ hefur nú verið tekið af markaði, stuttu eftir að lyfjafyrirtækið skilaði billjóna hagnaði og viðurkenndi fyrir dómstólum í hópmálsókn gegn þeim, að það gæti valdið lífshættulegum blóðtöppum.

Hvað stóð í samningunum sem ekki mátti opinbera?

Á bls. 53 í bóluefnasamningi framkvæmdarstjórnar ESB og lyfjaframleiðandans Pfizer, sem undirritaður var 20. nóvember 2020, segir:

„Samningsaðilar eru meðvitaðir um að þróun öruggra og virkra bóluefna er afar flókin framkvæmd og líkurnar á að hún misheppnist eru mjög miklar. Þess vegna verða gerðir fyrirframgreiddir kaupsamningar við nokkra leiðandi bóluefnaframleiðendur, til að hámarka líkurnar á að fá a.m.k eitt öruggt bóluefni.“ 

P.s. það vantar bara Ölmu landlækni til að lesa upp auglýsinguna fyrir Katrínu. En hún þykir reyndar „slægur pólitíkus“ og vill eflaust fjarlægja sig frá Covid-svindlinu sem hún vissi að væri svindl frá upphafi og því var tengdó kippt út úr bóluefnaröðinni á Sóltúni á sínum tíma.

 

 

 

 


mbl.is Lýsa yfir stuðningi við Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kíghósti er bakteríusýking - ekki veirusýking

Í tengdri frétt segir:

Spurð hvers vegna grun­ur um kíg­hósta hafi komið upp seg­ir Sig­ur­laug að veik­indi leik­kon­unn­ar hafi lýst sér í þurr­um hósta og hita. Ljóst var að um ein­hvers kon­ar veiru­sýk­ingu væri að ræða. 

En kíghósti er bakteríusýking samkvæmt upplýsingum á Heilsuveru:

Kíghósti (e. pertussis) er öndunarfærasýking sem orsakast af bakteríunni bordetella pertussis. Hann er algengastur hjá börnum, einkum á fyrstu mánuðum ævinnar. Hjá unglingum og fullorðnum birtist sjúkdómurinn sem langvarandi og þrálátur hósti. Sýkingin stafar af bakteríu sem framleiðir eiturefni sem veldur slæmum hóstaköstum.


Og gott að leikarinn sé bólusettur við kíghósta, því þá ætti hann ekki vera í mikilli hættu. En verður áhugavert að fylgjast með því hvort bólusetti leikarinn hafi smitað aðra og þá hvort þeir séu bólusettir eða ekki, þ.e.a.s. ef um kíghósta er að ræða.


mbl.is Skimað fyrir kíghósta meðal leikara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öll börnin sem fengu kíghósta og hettusótt voru bólusett!

bólusetningarbarna

Greinin hefur verið uppfærð vegna nýrrar fréttar um mögulegt kíghóstasmit*

Ný bólusetningaherferð er hafin, nú með hinar hefðbundnu barnabólusetningar, eins og þær kallast. Töluvert hefur dregið úr aðsókn síðustu ár og fyrstu og algengustu viðbrögð á samfélagsmiðlum við fréttum af nýjum smitum eru: „mæðrum sem ekki fara með börnin sín í bólusetningar er um að kenna að sjúkdómarnir breiðist nú út.“ 

 

Þykir ekki vænt um börnin sín

Helstu fjölmiðlar sem þessa dagana eru í vitundarherfð um mikilvægi blaðamennsku dustuðu í vikunni covid-rykið af Kára Stefánssyni (og bláu Covid-gallaskyrtunni) og fengu hann í sjónvarpsviðtal. Kári sem er forstjóri ÍE, erlends fyrirtækis í eigu sömu fjárfesta og eiga stóran hlut í stærstu lyfjaframleiðendum, gaf til kynna að foreldrum sem ekki fara með börn sín í bólusetningar þætti ekki vænt um þau. 

Kári var ekki spurður út í bólusetningastöðu þeirra sem smitast hafa af „barnasjúkdómunum“ nýlega? Þá hefði læknirinn, vísindamaðurinn og síðast en ekki síst bissnessmaðurinn  líklegast lent í vanda, jafnvel reiðst eins og hann er þekktur fyrir. Ef árvekni ríkti hjá fjölmiðlamönnum hefðu þeir auðvitað spurt þessarar spurningar.

Smituðu börnin voru bólusett

Sú sem þetta skrifar hefur haft nokkuð fyrir því að fá svör frá landlæknisembættinu um þetta mikilvæga atriði. Og hvert var loks svarið frá sóttvarnalækni? Allt hafði fólkið fengið bólusetningar við kíghósta, og ENGINN sem var alveg óbólusettur var meðal þeirra smituðu. Dæmin endurspegla því ekki áróður yfirvalda og Kára enda koma bóluefnin ekki í veg fyrir smit.

Nánar tiltekið. Sex manns hafa greinst með kíghósta undanfarið, tveir á aldrinum 35-40 ára. Þeir voru bólusettir en meira en 10 ár liðin frá bólusetningu. Skiljanlega, enda þannig hjá okkur flestum sem erum orðin eldri en tuttugu og eitthvað vetra. 

Næst eru það fjögur börn á aldrinum 3-15 ára sem greindust með kíghóstaEitt þeirra hafði fengið allar 5 sprauturnar, hin færri vegna aldurs (en þá í samræmi við bólusetningaáætlunina). Eitt barn var aðeins búið að fá eina bólusetningu en hefði átt að vera búið að fá 4. Sem sagt ekkert al-óbólusett barn var meðal hinna smituðu, barn sem skv. heilbrigðisyfirvöldum og Kára eiga að vera í mestri hættu á að veikjast og smita aðra.

(Bólusetningar hérlendis við kíghósta eru gefnar við 3, 5, 12 mánaða aldur og aftur 4 og 14 ára.)

*Í frétt frá því í gær segir frá leikkonu sem er grunuð um að vera með kíghósta og að hún sé bólusett (við kíghósta). 

„Hettusóttarbörnin“ voru líka bólusett

Þá kom fram í fréttum fyrir stuttu að skólabörnin í Hraunvallaskóla sem fengu hettusótt hafi verið bólusett við veikinni. Hinir tveir sem veiktust voru fullorðnir og ekki bólusettir, eins og raunin er meðal flestra fullorðinna Íslendinga (bólusetningar með MMR hófust ca. 1974 og flestir fæddir fyrir þann tíma höfðu fengið sjúkdómana). Aftur, ekkert barn sem skv. heilbrigðisyfirvöldum og Kára eiga að vera í mestri áhættu, smitaðist eða veiktist af hettusótt. (bólusetningahlutfall er nú um 89% hérlendis og því má reikna með að um 10% barna í Hraunvallaskóla séu óbólusett).

Ímyndið ykkur hvað þetta viðtal við vísindamanninn Kára hefði orðið öðruvísi ef blaðamennirnir hefðu haft fyrir því að fá þessar upplýsingar, bólusetningastöðu þeirra smituðu!

Vondir eða lesnir foreldrar?

Getur verið að fleiri foreldrar séu farnir að skoða söguna um almennar bólusetningar og svokallaða barnasjúkdóma eftir hina misheppnuðu Covid-bólusetningaherferð og m.a. þá staðreynd að dauðsföll af völdum mislinga og annarra smitsjúkdóma voru þegar að líða undir lok þegar bóluefnið kom á markað, m.a. með tilkomu aukins hreinlætis; betri pípu-og skolplagna, hreins vatns, betri næringar, betri kæli-og geymsluaðferða á matvælum o.fl. (minni fátækt - meiri velmegun).

Þetta með hreinlætið má einmitt sjá í grein Skúla G Johnsen fyrrv. borgarlæknis árið 1977 þar sem hann fjallar um að aukið hreinlæti o.fl. hafi valdið því að mislingar eru ekki lengur hættulegur sjúkdómur, og það árið 1977.

Með öðrum orðum, er verið að eigna lyfjafyrirtækjunum eitthvað sem þau ekki eiga?  Sjá td. mynd  hér neðar úr skjali Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, bls. 85. (Bólusetningar við mislingum hófust hér á landi 1976).

Ekkert bóluefni kom t.d. á markað vegna skarlatsóttar en hún fjaraði sömuleiðis út (eða dauðsföll vegna hennar), sjá neðar. Bólusetningar við taugaveiki urðu ekki almennar á vesturlöndum, og ekki er bólusett við veikinni hér á landi. Aftur á móti er boðið upp á hana, sé viðkomandi að ferðast til vanþróaðra landa þ.s. hreinlæti er bágborið og ekki hægt að tryggja hreint vatn.

linuritmislingar  bólusetn.Kári að sinna lagalegu skyldum 

 
Til að skilja hvaðan málflutningur Kára kemur, og um leið hversu ófaglegt það er af fjölmiðlafólki að fá hann sem álitsgjafa á bólusetningum, þá verður að hafa í huga, að Kári er að sinna sínu starfi.

Erlenda fyrirtækið Íslensk erfðagreining, er eins og áður segir í eigu sömu fjárfesta og eiga stóran hlut í stærstu lyfjaframleiðendum. Lyfjaframleiðendur verða lögum samkvæmt að skila hagnaði til fjárfesta sinna. Engin lög er um að þau þurfi að gæta að heilsu neytenda. Þetta kom m.a. fram í viðtali Frosta Logasonar við breskan hjartalækni nýlega.

Glíma Íslendingar við alnæmi - mögulega varanlegt?

vaidsMislingar, hettusótt, kíghósti, hvít lungnabólga og margt fleira hefur herjað á landsmenn undanfarið og samkvæmt Gallup könnun í byrjun árs voru að meðaltali 14% landsmanna veik á árunum 2010 -2021 en sú prósenta hækkaði upp í 22% að meðaltali næstu tvö ár á eftir.


Landsmenn tilraunadýr fyrir nýtt líftæknilyf


Þessar fréttir eru þó nánast undantekningalaust sagðar án þess að minnast orði á að landsmenn tóku þátt í lyfjatilraun frá og með byrjun árs 2021. Um milljón skömmtum af nýrri tegund líftæknilyfja var sprautað í fólkið, efnum sem aldrei áður höfðu verið notuð á mannfólk. Þetta var gert þó að eftirlitsaðilar hafi vitað um skaðann sbr. allra fyrstu rannsóknargögn sem m.a. sýndu að þeir sem voru í rannsóknarhópnum og fengu sprautuefnið, fengu frekar það sem kallast Covid en hinir sem voru í lyfleysuhópnum.

Kíghósti og lamað ónæmiskerfi

Og nú hósta landsmenn vikum og mánuðum saman. Kíghósti! Myndir af veikum ungabörnum með 42 stiga hita fylgja fréttunum. En skv. upplýsingum frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er enginn á spítala og enginn alvarlega veikur. Þessir tveir sem greindust fyrst eru skv. svari frá sóttvarnalækni á aldrinum 35-40 ára og höfðu fengið bólusetningu við kíghósta (en meira en 10 ára síðan). Beðið er eftir svari um aldur og bólusetningastöðu hinna fjögurra sem hafa greinst. Langflest börn og unglingar hafa fengið kíghósta sprautur. Bóluefnið er alltaf kynnt í fréttunum sem vörn við sjúkdómnum en er það ekki. 

Rakst síðan á þessa kenningu frá bandarískum lækni um kíghósta sem greinist nú í auknum mæli víðsvegar í heiminum. Hún hljóðar svona:

Ástæðan fyrir því að tilfellum af kíghósta fjölgar er sú að fjöldabólusetning með rúmlega 13 milljörðum skammta af COVID-19 „bóluefninu“ var gefið rúmlega 5,3 milljörðum jarðarbúa og hefur leitt til óvirks ónæmiskerfis (herd DYS-immunity) á heimsvísu. Þetta er betur þekkt sem VAIDS sem er skammstöfun fyrir áunnið ónæmisbrestsheilkenni af völdum bóluefnis. Þetta var ekki bóluefni, heldur tilraunameðferð með erfðaefni sem hefur verið hörmuleg og lamar ónæmiskerfi manna, kannski varanlega. Þessi lamandi ónæmisheilkenni er ekki aðeins til marks um óviðjafnanlega aukningu á öllum sýkingum, veirum, bakteríum og sníkjudýrum heldur einnig aukningu krabbameina um allan heim. Daily Mail greindi nýlega frá því að í Bandaríkjum deyr fólk á 90 sekúndna fresti af völdum alvarlegrar sýkingar í blóði sem kallast á ensku "blood termed sepsis".

 

Heilbrigðisyfirvöld sem eru sek um að sprauta skaðlegum efnum í unga og aldna munu aldrei nefna þessa augljósu tengingu við verri heilsu landsmanna. Þeirra lausn er: fáið ykkur fleiri sprautur, og líka ófrískar konur (nokkuð sem aldrei var gert hér áður!).

Þessi markaðssetning fyrir lyfjafyrirtækin á sér einfalda skýringu. Heilbrigðiskerfið um allan heim er að vinna fyrir lyfjaiðnaðinn sem skv. lögum ber að skila hagnaði til fjárfesta sinna. Engin lög eru aftur á móti um það að lyfjafyrirtækjunum beri að vernda heilsu neytenda. Sjá þetta merkilega viðtal Frosta Logasonar við Íslandsvininn og hjartlækninn Aseem Malhotra.

p.s. er "long covid" ekki bara annað orð yfir alnæmi („áunnin ónæmis-skerðing“)?


mbl.is Kíghósti hefur breiðst út um höfuðborgarsvæðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fór Ólafur Ragnar einnig að ráðum erlends hjartalæknis?

Ólafur-og-DorritNokkuð áhugaverðar upplýsingar komu fram í þætti Frosta Logasonar í síðustu viku. Nánar tiltekið að fyrrverandi forsetafrú okkar Íslendinga, Dorrit Moussaieff, hafi ekki farið að ráðum íslenskra lækna eða íslenska heilbrigðiskerfisins sem hvatti landsmenn, sérstaklega þá eldri, til að fara í covid-örvunarsprautur með reglulega millibili. 

Bresk-indverski myndarlegi hjartalæknirinn Dr Aseem Malhotra gladdi fjölmarga landsmenn í byrjun þessa mánaðar með því að ferðast til landsins og halda fyrirlestur á Reykjavík Natura í pakkfullum tvöföldum ráðstefnusal. Lifandi og skemmtilegur náungi með breskan húmor og frábæra ræðu. 

Daginn eftir mætti Malhotra í viðtal til Frosta og sagði m.a. frá því að hann og Dorrit væru vinir frá því í síðustu heimsókn hans til landsins 2016. Dorrit leitaði stundum ráða hjá honum, þar á meðal varðandi sk. örvunarsprautur við covid. Samkvæmt hjartalækninum fór hún að ráðum hans og fékk sér ekki örvunarskammt.

Hvað með eiginmanninn, Ólaf Ragnar Grímsson, fór hann í "boost"? Hvað með aðra yfirstéttar - Íslendinga, leituðu þeir út fyrir landsteinana eftir ráðum, treystu ekki Kára Stef. og þríeykinu? Svo ekki sé talað um hvatningu núverandi forseta, sem tók þátt í að auglýsa sprauturnar og sagði að „frelsi til að sýkja aðra væri rangsnúinn réttur(hann vissi auðvitað ekki að aldrei hafi verið rannsakað hvort sprauturnar kæmu í veg fyrir útbreiðslu smita og var því bara að tala út í loftið, en hélt líklega að hann væri að vitna í vísindi).

Brot úr viðtalinu má sjá hér og allan þáttinn hér (áskrift).

 

 

 

 

 


Adele aflýsir fjölda tónleika í mars - veikindi sprautaðra mikil

Mark Crispin Miller segir í nýjustu færslu sinni á Substack m.a. frá því að söngkonan Adele hafi aflýst tónleikum sínum vegna endurtekinna veikinda. Hefur hún frestað í óákveðinn tíma öllum tónleikunum sem hún ætlaði að halda núna í marsmánuði í Las Vegas.
 
Flestir ættu að muna það þegar hún í byrjun ársins 2022 bannaði þeim aðdáendum sínum sem ekki höfðu látið sprauta sig með Covid-19 tilraunaefnunum að koma á tónleika sína og The Sun sagði frá.
 
adele
 
Telja má öruggt að Adele hafi látið sprauta sig með Covid-19 tilraunaefnunum eins og  flest allir aðrir listamenn vestan hafs enda var það eitt af þeim skilyrðum sem þeim voru sett til að mega halda áfram að sinna list sinni.
 
Það er því líklegt að veikindi hennar megi rekja til afleiðinga Covid-19 tilraunasprautanna, eins og veikindi fleiri frægra einstaklinga sem Miller segir einnig frá í færslu sinni, svo sem Jon Bon Jovi og Justin Timberlake ofl.
 
Listinn frá því í síðasta bloggi mínu með frásögnum af þeim hörmulegu afleiðingum sem fólk hefur orðið fyrir eftir að hafa verið sprautað með tilraunaefnunum sem kallað er Covid "bóluefni" lengist stöðugt. Hérna má sjá listann eins og hann er í dag, samtals 154 blaðsíður með sorglegum frásögnum af fólki sem hefur skaðast.

Justin Bieber hefur einnig aflýst öllum tónleikum eftir að hann tilkynnti um taugasjúkdóm og lömun í andliti (og eiginkonan blóðtappa í heila). Þá hefur Celine Dion aflýst öllum tónleikum eftir veikindi og tilkynnt um sjaldgæfan taugasjúkdóm.

 


Arnar Þór og Alma í kappræðum

almaÞað yrði áhugavert að sjá og heyra þau Arnar Þór og Ölmu í kappræðum, t.d. um umframdauðsföllin sem átt hafa sér stað í tíð Ölmu, sérstaklega árið 2022, eftir hina "öruggu og áhrifaríku" sprautuherferð.

Skora á Ölmu að bjóða sig fram þannig að landsmenn geti meðal annars horft á hana svara fyrir annus horriblis í beinni útsendingu.

Langar annars að vita hver skoraði á hana, var það tengdó á Sóltúni (í þakklætisskyni)?


mbl.is Alma Möller: „Íhuga að íhuga forsetaframboð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Navalny lést úr blóðtappa segir yfirmaður leyniþjónustu Úkraínu

navalnyFyrr í dag skýrði yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, Kyrylo Budanov, frá því að Navalny hafi látist af völdum blóðtappa. 

Fréttamenn spyrja Budanov um dánarorsök Navalny og Budanov svarar: Það gæti valdið ykkur vonbrigðum en það sem vitum er að hann fékk blóðtappa.

Hér má sjá upptöku af fréttinni:

https://twitter.com/i/status/1762107989241078163

 

 

Daily Mail segir meðal annars frá.


Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband