Leita í fréttum mbl.is

En hér á landi?

,,Upp­lýs­ing­ar liggja nú fyr­ir um að börn séu að leggj­ast al­var­lega veik inn á spít­ala vegna veirunn­ar í bæði Banda­ríkj­un­um sem og öðrum Evr­ópu­lönd­um."

En hér á landi þar sem börnin hafa ekki verið bólusett, 5-11 ára eins og t.d. í Bandaríkjunum?  Nei einmitt, ekkert barn hér heima fór að leggjast inn á spítala v. Covid fyrr en bólusetningar hófust, sá fyrsti var 14 ára og fékk blóðtappa í bæði lungun. Covid var kennt um eins og alltaf. Nýjasta dæmi um það (kenna Covid um) er svo þessi frétt.

Skv. áreiðanlegum heimildum er lagt til að líkkistur þeirra sem ,,látast af Covid" verði hafðar lokaðar við kistulagningu. 

Handritið er augljóst. 


mbl.is Börnum á aldrinum 5-11 ára boðin bólusetning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þríbólusettur lætur lífíð ,,af Covid"

Maðurinn sem lést var þríbólusettur og nýkominn úr örvunarsprautu, þar hafið þið það. Með ,,bóluefni" sem fyrst var sagt að myndi koma í veg fyrir smit en siðar þegar kom í ljós að það væri rangt, þá var talað um að það kæmi í veg fyrir veikindi. Það er líka rangt. Þriðja sprautan átti svo að veita enn meiri vörn og jafnvel mynda hjarðónæmi skv. a.m.k. vonum sóttvarnalæknis.

En dauðsföll eftir sprauturnar verður reynt að flokka sem Covid dauðsföll. Hann fékk lungnabólgu sem síðar var kölluð Covid lungnabólga.

Mbl.is

Gamli maðurinn, einnig þríbólusettur, sem lá eða liggur enn á spítala, sá fyrsti til að greinast með ómíkrón smitaðist af ættingja sínum sem var að koma frá Afríku og ekki þurfti að fara í sóttkví þar sem hann var bólusettur. En heilbrigðisyfirvold þögðu um tengslin enda myndi það þýða hruna á sóttvarnarreglunum núverandi sem sleppa ,,bólusettum" lausum eftir ferðalög að utan þar á meðal svæðum sem flokkast sem hættusvæði.

 

 


mbl.is Andlát vegna veirunnar í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að vera óbólusettur?

Er það ef þú hefur ekki fengið Covid sprautu í 6 mán og tíma komin á næstu eða er það ef ekki eru liðnir um 14 dagar frá síðustu sprautu eins og kom fram í máli Runólfs Pálssonar í sumar. Hvað með þá sem hafa fengið eina sprautu eins og t.d.tugir þúsunda Janssen þega hafa fengið?

Í Noregi eru reglurnar þannig að þú ert skráður óbólusettur ef 6 mán. eru liðnir frá síðustu bólusetningu. 

Hér var reynt að komast að hinu rétta í málinu hér á landi en blaðamanni vísað í hringi.

Stuttu síðar kom í ljós að spítalinn telji vissulega þá sem ekki hafa farið örvunarskammt sem óbólusetta. Sjá hér. Því virðist nokkuð ljóst að þessu er eins háttað hér á landi eins og í Noregi.


mbl.is Allir fimm eru í öndunarvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með sóttkví bólusettra við komuna til landsins?

Enginn þóttist vita hvernig gamall þríbólusettur maður sem liggur á spítala (fara þríbólusettir líka á spítala - hélt þeir yrðu ekkert veikir?) hafi smitast af omicron. Jú, Skagamenn eru búnir að rekja smitið sjálfir, náinn bólusettur ættingi gamla mannsins var nýkominn frá Afríku, þurfti ekki að fara í sóttkví því hann var bólusettur.

Sem sagt fullbólusettur maður (tví-eða þrí, fylgdi ekki sögunni) smitar þríbólusettan mann. Sorglega lélegt handrit.

sjá nánar.

https://frettin.is/2021/12/06/sjuklingurinn-sem-liggur-inni-med-omicron-smitadist-af-aettingja-nykomnum-fra-nigeriu/


mbl.is Staðan endurmetin þegar menn vita meira um Ómíkron
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúnarðarskjöl Pfizer sem fengust með dómsúrskurði

Þau er hér og sýna ,,vísindin"!

https://frettin.is/2021/12/04/skjol-fra-pfizer-stadfesta-glaepsamlega-yfirhylmingu-andlata-og-skada/


mbl.is Hlíðaskóla skellt í lás vegna veirunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir bólusettu smita meira segir í læknaritinu Lancet

Þannig að ekkert að því sem læknirinn Þórólfur, Kári ofl. hafa sagt hefur stemmt hingað til. Ekkert hjarðónæmi og fjöldi fólks er mikið veikur eftir örvunarefnið. Þeir tveir gætu samt örugglega fengið vinnu við að selja notaða bíla.

Sjá hér.

https://frettin.is/2021/12/03/bolusettir/


mbl.is Raunhæfur möguleiki að komast bráðum út úr Covid
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Covid tengd veikindi?

,,Barn var tekið með keis­ara­sk­urði á Land­spít­al­an­um fyrr í mánuðinum vegna veik­inda móður­inn­ar. Móðirin hafði verið lögð inn á gjör­gæslu vegna al­var­legra Covid-tengdra veik­inda. Þurfti hún á önd­un­ar­vél að halda. 

Rík­is­út­varpið greindi frá því í kvöld­frétt­um að móður og barni heils­ist eft­ir at­vik­um. 

Ákveðið var að barnið skyldi tekið með keis­ara­sk­urði svo að hægt yrði að leggja móður­ina á grúfu til að bæta loft­skipti. Er­lend­is hef­ur þetta þekkst hjá mæðrum með al­var­leg til­felli Covid-19."

Hvað eru Covid tengd veikindi, var hún með Covid eða ekki? 

mbl.is Barn tekið með keisara vegna veikinda móður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá fyrst fara börnin að leggjast inn

,,Um 25% til 30% þeirra sem hafa greinst smituð und­an­farið eru börn í grunn­skól­um, að sögn Þórólfs."

Já og eru þau á spítala? Eða eru þau að smita fólkið ,,sem hefur verið bólusett við sjúkdómnum"?

Þessi vesalings fálkaorðuhafi er ekki að vinna sem læknir fyrir þjóð sína, það heyrist langar leiðir. Og yngri börn fara að leggjast inn eftir að þau verða sprautuð með hjartabólgur og blóðtappa.

Einmitt það gerðist þegar 12-15 ára fengu sprautuna, þá lagðist inn 14 ára drengur með blóðtappa í sitthvoru lunganu. Því var klínt á Covid en hann hafði greinst pósítívur með Covid án þess að hafa orðið veikur, eða það mátti skilja af viðtali sem var við hann og föður hans á Stöð2 þar sem öll familjan hafði verið veik með Covid. Blóðtapparnir voru ekki vegna Covid heldur bóluefna sem eru þekkt fyrir að valda blóðtappa.

Unglingsdrengur liggur enn veikur heima með bæði gollurshúss-og hjartavöðvabólgu. Verðu eflaust aldrei samur. 

Glæpsamlegt stríð gegn börnum og heilbrigðu fólki! Og fela skal fyrir fólkinu á hvaða forsendum þessi bóluefni voru samþykkt.


mbl.is Bóluefnasending fyrir yngri börn á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rifrildi um gagnslaust bóluefni

Ef þetta væri nú bóluefni sem stöðvaði smit og veikindi, myndi maður aðeins skilja þetta en þarna er fólk að rífast eins og þetta væri alvöru bóluefni sem veitir ónæmi.

„Ég hef aldrei upp­lifað annað eins. Það er ótrú­leg­ur hiti í báðar átt­ir. Þeir sem eru bólu­sett­ir eru að skamma þá sem eru óbólu­sett­ir og eru ekk­ert að segja: „Hey, láttu bólu­setja þig“, held­ur frek­ar eitt­hvað eins og: „Ég óska þess að þú dey­ir ef þú færð kór­ónu[veiruna] og þú ætt­ir að borga fyr­ir eig­in spít­ala­vist“ eða hrein­lega: „Þú ætt­ir ekki að mega fara á spít­ala ef þú ert ekki bólu­sett­ur“ og eitt­hvað svo­leiðis,“ seg­ir Halla.

En hefur fólk ekki áhuga á að vita hvers vegna leynd hvílir yfir bóluefni Pfizer, eða bara alveg sama hverju það sprautar í sig?


mbl.is „Ég hef aldrei upplifað annað eins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir hver - hið lítt bólusetta CDC?

Hér er skemmtilegt innlegg í umræðuna, yfirheyrsla úr þinginu þar sem fram kemur að hátt hlutfall CDC starfsmanna er ekki bólusett og hangir bara heima í stað þessa að mæta í vinnu:

https://frettin.is/2021/11/08/meirihluti-starfsmanna-sottvarnarstofunar-bandarikjanna-obolusettir/


mbl.is Ráðleggja fólki að ferðast ekki til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband