Leita í fréttum mbl.is

Svertingjar og frumbyggjar í forgangi með bóluefni í Bandaríkjunum

Melinda Gates eiginkona Bill Gates vill að svertingjar og frumbyggjar verði í forgangi þegar kemur að bólusetningu gegn Covid19 i Bandaríkjunum. Sjá mínútu ca. 05 í þessu viðtali við Gates hjónin. 

Melinda vill sem sagt að heilbrigðisstarfsfólk um heim allan verði fyrst í röðinni og eftir það eigi svart fólk og frumbyggjar/innfæddir (indigenous people) í Bandaríkjunum að fá bóluefnið. Og eins fólk með undirliggjandi sjúkdóma og eldra fólk.

Sem sagt ekki bara aldraðir svertingjar og frumbyggjar eða svertingjar og frumbyggjar með undirliggjandi sjúkdóma, heldur svertingjar og frumbyggjar per se.

Hér á landi býr svart fólk og því er spurning hvort það eigi að vera í forgangi? 

(Ath. þetta er ekki mín tillaga, en hef ekki heyrt það áður í Covid umræðunni að ákveðnir kynstofnar væru í meiri áhættu en aðrir. T.d. hafa Afríkubúar sloppið mjög vel í faraldrinum, lág dánartíðni).

Sú kenning hefur komið fram að svart og hörundsdökkt fólk sem býr norðarlega á hnettinum, þar sem sólarljósið er minna skorti oft D-vítamín og því ekki eins varið gegn hvers kyns sýkingum. En þá væri kannski ráð að taka inn meira D-vítamín eins og okkur á Íslandi er ráðlagt að gera. 

 


mbl.is Kaupa bóluefni fyrir 70% þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. nóvember 2020

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband