Leita í fréttum mbl.is

Undirbúningur á "skyldubólusetningu" hafin

Fram hefur komið að menn verði ekki skyldugir til að taka erfðabreytta bóluefnið sem samið hefur verið um kaup á frá Pfizer. En svona verður þú samt sem áður ,,skyldaður" til að taka það.


Frétt á vísi í dag:

,,Þeir sem fengið hafa Covid-19 og lokið einangrun verða undanskildir grímuskyldu frá og með 18. nóvember næstkomandi, þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra um kórónuveirutakmarkanir tekur gildi. Á fimmta þúsund Íslendinga munu þannig ekki þurfa að nota grímu."
(a.m.k. ekki fyrst um sinn, var ekki sagt að mótefnið entist ekki nema í einhverja mánuði? En þarna er verið að leggja línurnar. Mótefni við Covid19 = engin gríma).

Síðan mega hinir taka niður grímurnar þegar þeir láta bólusetja sig. Þessa áætlun mátti t.d. lesa í aðsendri grein Bill Gates (eins helsta fjármögnunaraðila WHO, ráðgjafa Íslands og annarra landa í þessum faraldri) í Fréttablaðinu 30.sept. sl. þar sem hann segir meðal annars: ,,Af því að við getum bólusett gegn sjúkdómnum munu stjórnvöld vera fær um að aflétta fjarlægðarráðstöfunum. Fólk mun ekki lengur þurfa að ganga með grímur. Efnahagur heimsins mun taka við sér af fullum krafti."

Þetta með grímurnar hefur auðvitað lítið með veiruvörn að gera enda heyrðum við og lásum Þórólf segja í vor og sumar, að þær væru lítið gagnlegar. Í vor voru allir með plasthanska en ekki með grímur en allt í einu komu glænýjar upplýsingar og rannsóknir um að grímur væru vörn gegn Covid19. Læknavísindinn breyttust nánast á einni nóttu. Þá varð svo mikilvægt að vera með grímu og skólabörn niður í 10 ára voru skyldug til að klæðast henni þrátt fyrir að þau séu ekki í áhættuhópi og veikjast lítið sem ekkert af pestinni. Og allir hættu að vera með plasthanska.

Það er frekar auðvelt að sjá hvað vakir fyrir mönnum enda gífurlegt magn af bóluefni sem á að kaupa inn á næstu misserum.  

Með öðrum orðum, lífið verður "eðlilegt" á ný þegar þú færð erfðabreytta bóluefnið (RNA bútur) sem aldrei hefur verið prófað áður á mönnum. Annars muntu þurfa að halda áfram að ganga um eins og kjáni með grímu sem er ekki vörn gegn veiru (annars hefðu menn fyrir löngu verið byrjaðir að ganga með bréf fyrir andlitinu til að forðast veirupestir).

Hér er líka grein úr tímaritinu National Graphic sem útskýrir hvernig bóluefnið gæti orðið "skylda".


mbl.is Auðvelt fyrir veiruna að komast inn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. nóvember 2020

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband