Leita í fréttum mbl.is

Hvað með þá sem liggja inni?

,,Alls greind­ust 62 kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær. Af þeim sem smituðust var meiri­hluti óbólu­sett­ur, eða 35. Bólu­sett­ir voru 27.

Af þess­um 62 voru 42 þegar í sótt­kví við sýna­töku.

Ekki hafa fleiri smit greinst á ein­um degi frá því í lok ág­úst.

Þetta kem­ur fram í upp­færðum töl­um á covid.is. 

Tvö smit greind­ust virk á landa­mær­um, auk eins eldra smits. Eitt sýni bíður mót­efna­mæl­ing­ar.

Fjór­ir liggja inni á sjúkra­húsi með sjúk­dóm­inn. Einn þeirra er á gjör­gæslu.

499 manns eru í ein­angr­un vegna smits og 1.499 til viðbót­ar í sótt­kví."

Þetta er hálfunnin frétt fyrst verið er að flokka í bólusetta og óbólusetta. Hvað með þá sem liggja inni? Og eru börn í hópi þeirra sem greindust með smit, ef undir 12 ára þá eru þau öll óbólusett með Covid ,,bóluefninu."

Þessi ókláraða frétt er því augljóslega áróðursfrétt. Þetta lyf sem Lyfjastofnun og yfirvöld kjósa að kalla bóluefni kemur ekki í veg fyrir smit og því segir þessi flokkun ekkert. Við viljum aftur á móti vita hvort þeir sem liggja inni séu bólusettir eða ekki, átti þetta lyf ekki að koma í veg fyrir veikindi (fyrst að það virkaði ekki gegn smitum)? Ekki er ólíklegt að meirihluti þeirra sem liggur enn sé bólusettur, annars hefði sá sem skrifaði þessa frétt tekið annað fram.


mbl.is 62 smit innanlands og meirihlutinn óbólusettur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Það styttist í að talað verði um aðra "bylgju" og þrýst á að byrja sprauta í þriðja skipti í sem flesta og yngsta. Sem stendur er jafnt í dauðsföllum á milli sprautu og veiru en sprautan fer þá að taka hressilega fram út nema yfirvöld missi í annað Landakotsslys og veiran tekur fram úr.

Geir Ágústsson, 18.10.2021 kl. 06:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband