Leita í fréttum mbl.is

Moderna aukaverkanir - fáið þið þetta til að stemma?

 
tilkynningarEUdra
 
Lyfjastofnun hefur nú birt sundurliðun á aukaverkunum.
Fáið þið þetta til að ganga upp með Moderna?

 
COVID-19 Vaccine Moderna:
12 alvarlegar tilkynningar hafa borist:

 
 
-Tíu tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af ein lífshættulegt ástand).
-Ein tilkynning varðar lífshættulegt ástand.
-Ein tilkynning telst klínískt mikilvæg og þar með flokkuð sem alvarleg****.
 
Er liður tvö ekki þegar inni í fyrsta liðnum í sviganum (þar af ein lífshættuleg) eða fór sá sem var í lífshættu ekki á sjúkrahús? Og er þriðji liðurinn annað en liður eitt og/eða tvö - lífshættulegt ástand - klínískt mikilvæg? Er lífshættulegt ástand ekki alltaf metið klíniskt mikilvægt?

Sýnist vanta eina í Moderna bókhaldið og jafnvel tvær!

Og hefur Lyfjastofnun með allt sitt starfsfólk engan þýðanda á sínum snærum? Er boðlegt að bjóða Íslendingum upp á útlensk heiti á aukaverkunum? Sjá meðfylgjandi mynd og hér neðar á síðunni.

Bókari/endurskoðandi myndi a.m.k gera athugasemd við þetta bókhald.

mbl.is Fleiri árgangar boðaðir vegna dræmrar mætingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Lyfjastofnun eru að leita að 4 nýjum starfsmönnum ofan á sína núverandi 70+, þar á meðal sérfræðing í lyfjaskráningum í markaðsleyfadeild sem þarf að hafa "mjög gott vald" á bæði íslensku og ensku og hafa reynslu af vinnu við lyfjatexta á íslensku, ensku og Norðurlandatungumáli. Kannski það hjálpi til við þýðingar:

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/laus-storf-a-starfatorgi/auglysing-/2021/05/30/Serfraedingur-i-lyfjaskraningum-i-markadsleyfadeild/

Annars hljóta nú íslenskir læknir af hafa skráð aukaverkanir í kerfið á íslensku og það síðan þýtt fyrir útlendingana.

Geir Ágústsson, 10.6.2021 kl. 13:59

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Já einmitt. En hvað finnst þér um bókhaldið? Fór sá sem var í lifshættu ekki á spítala? Bara hinir.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 10.6.2021 kl. 14:04

3 identicon

Sæl Þórdís, 

Það ætti að vera búið að segja þessu fólki hjá Lyfjastofnun Íslands upp, og sparka því út, því þetta er ekki lengur boðlegt svona. Það er eins að aðalatriðið hjá þessu liði sé að reyna fela svona mikilvægar upplýsingar er eiga að vera öllum opinberar. Þetta er örugglega ein sú lélegasta Lyfjastofnun eða eftirlits- og neytendastofnun í heim. Ég er á því eins og fleiri að það ætti að fara fram á óháð rannsókn á allri þessari líka lélegu eftirlits- og neytendastarfsemi hjá Lyfjastofnun Íslands (eða öðru nafni Lygastofnun Íslands). 
KV. 


Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.6.2021 kl. 14:46

4 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Er málfrelsi á þessari síðu ?

Spyr fyrir vin...

Sigfús Ómar Höskuldsson, 10.6.2021 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband