Leita í fréttum mbl.is

Veiran ekki manngerð - útilokað af íslenskum lækni og prófessor!

crazybatFor­seti Banda­ríkj­anna hef­ur farið fram á það við leyniþjón­ustu­skrif­stof­ur Banda­ríkj­anna að þær rann­saki upp­gang Covid-19 á sama tíma og vax­andi ágrein­ing­ur er um upp­runa veirunn­ar. Fyrr í vik­unni fjölluðu banda­rísk­ir fjöl­miðlar um mögu­leik­ann á því að veir­an hafi orðið til í rann­sókn­ar­stof­um í Kína en stjórn­völd í Pek­ing hafa for­dæmt þess­ar frétt­ir og segja að veir­an hafi al­veg eins getað orðið til í banda­rísk­um rann­sókn­arstofum."  
Morgunblaðið segir frá.

Sú kenning að veiran hafi verið manngerð hefur nánast verið afsönnuð af Arnari Pálssyni erfðafræðingi og íslenska lækninum Jóni Magnúsi Jóhannessyni, einnig þekktur fyrir að skamma fjölmiðla og saka fólk um falsfréttir og samsæriskenningar, t.d. þegar Mogginn vogaði sér (takk Morgunblaðið og ritstjóri þess sem gerir grín að leðurblökukenningunni) að birta auglýsingu sem minnti fólk réttilega á að tilkynna aukaverkanir vegna bóluefna sem í dag eru að nálgast 1400.

Hér er hluti af svari Jóns læknis og Arnars prófessors.

Hvernig vita menn að veiran var ekki búin til á tilraunastofu?

Rannsóknir á erfðaefni veirunnar SARS-CoV-2 sem veldur sjúkdómnum COVID-19 sýna að veiran varð til við náttúrulega þróun í mismunandi dýrum. Hægfara breytingar á veirunni og endurröðun erfðaefnisins gerði henni síðan kleift að berast til manna og að lokum að smitast þeirra á milli. Rannsóknir vísindamanna á þessu ferli útiloka, að svo miklu leyti sem það er hægt, að veiran hafi verið búin til á tilraunastofu... Allt bendir til þess að veiran hafi komið úr leðurblökum en fengið bindiprótínið úr annarri kórónuveiru sem sýkir Manis javanica." Læknafélag Íslands birtir þessa niðurstöðu Jóns Magnúsar líka. 


Hvað með Íslenska Erfðagreiningu sem hefur raðgreint fleiri hundruð afbrigði. Eru tengsl við leðurblökuna eða ekki? Var ekki búið að einangra upphaflegu veiruna? 

Síðan gæti auðvitað verið að þetta væri manngerð leðurblökuveira.
batmanmandeÞeir sem ekki hafa horft á upptökur frá heimsfaraldursæfingunni Event 201 sem fór fram um haustið 2019, stuttu áður en „leðurblökufaraldurinn" hófst, endilega horfið. Þar er fulltrúi frá Kína sem segir ritstjórn samfélagsmiðla og fjölmiðla mikilvæga í komandi faraldri (allt skyggnt fólk, miðlar og spámenn sem voru á ráðstefnunni) þar sem fólk gæti haldið að veiran væri manngerð! Minnir að þetta hafi verið í þessu hluta um "communications".

En munið, alltaf að taka mark á vísindum! 

 

 


mbl.is Biden krefst rannsóknar á uppruna Covid-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband