Leita í fréttum mbl.is

Er þessum batnað?

vinur,,Lyfja­stofn­un hef­ur fengið 175 til­kynn­ing­ar um mögu­leg­ar auka­verk­an­ir vegna Pfizer bólu­efn­is­ins. Af þeim eru 159 minni­hátt­ar. Til­kynn­ing­ar vegna Moderna eru alls 128 tals­ins, þar af 3 al­var­leg­ar. Vegna Astra-Zeneca hafa borist 74 til­kynn­ing­ar um mögu­leg­ar auka­verk­an­ir, þar af tvær al­var­leg­ar. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Lyfja­stofn­un vörðuðu þess­ar al­var­legu til­kynn­ing­arn­ar fyr­ir Astra-Zeneca sjúkra­hús­inn­lögn og þar af var um að ræða bráðaof­næmis­ein­kenni í öðru til­vik­inu." Er þessum sem fékk Astra í fyrradag batnað? sjá mynd í vinstra horni. Þetta hljómar nú ekki eins og bráðaofnæmiskast.

Ekki kemur fram hverjar alvarlegu aukaverkanirnar eru vegna Moderna sem eru þrjár. Moderna fengu slökkviliðsmenn, lögreglan og sjúkraflutningamenn. Samkvæmt mínum heimildum er þessum einstaklingum alls ekki batnað!

Fékk einnig fréttir í dag af manneskju sem starfar við heimahjúkrun. Hún vildi ekki bólusetningu en henni var nánast stillt upp við vegg. Sprauta eða atvinnumissir! Hún fékk AstraZeneca og varð fárveik.

Finnst ykkkur að þetta boð (sjá neðar) hljómi eins og val? Og á sama tíma er vitað til þess að tengdamóður landlæknis hafi verið kippt út úr bólusetningarferlinu á hjúkrunarheimili (nei, nei ekkert á grafarbakkanum!) Ef árið væri 2008, gæti sú frétt verið einhvernveginn svona: ,,Tengdamóðir bankastjóra selur í Sjóði 9 rétt fyrir hrun." Aðrir eldri borgarar voru aftur á móti hvattir til að færa sparnað sinn inn í sjóðinn sem átti að vera algjörlega frábær fjárfesting! Lekinn um að tengdó hafi selt í Sjóði 9 er í rannsókn, þ.e.a.s. hverjir kjöftuðu frá.
hrafnistab
Ath! Alvarleg aukaverkun er skilgreind sem: aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla eða er metið sem læknisfræðilega mikilvægt atvik.


mbl.is Tíu andlát af 21 tilkynningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Sýndist það koma fram í frétt í dag að talið væri að ekki væri hægt að útiloka orsakasamband milli bólusetningar og andláts í einu af þeim 10 andlátum sem tilkynnt voru. Í fjórum tilfellum var sagt að þetta hefði verið útilokað.

En ekki var minnst á hina fimm. Batnaði þeim bráðkveddan?

Þorsteinn Siglaugsson, 26.2.2021 kl. 19:42

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Það fór engin krufning fram. Þeir bara segja eitthvað, sama og í útlöndum.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 26.2.2021 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband