Leita í fréttum mbl.is

Lýsi er lækning á covid...

Samkvæmt þessari rannsókn bendir allt til þess að við þurfum bara okkar eigið lýsi, ekki erfðabreytt tilraunabóluefni.

,,Fyrstu niðurstöður íslenskra vísindamanna undir forystu Einars Stefánssonar, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands, virðast benda til þess að fríar fitusýrur, sem er að finna í lýsi, eyðileggja kórónuveiruna á skömmum tíma. Ef þetta reynist rétt þá má segja að Íslendingar hafi haft lækninguna við COVID auðfáanlega í næstu verslun frá upphafi faraldsins.

Fiskifréttir greina frá þessu en Einar benti fyrst í mars á að lýsi gæti nýst í baráttunni við Covid-19. Rannsóknin nú var gerð af bandarískum samstarfsaðilum og sýndi hún að lýsi með bæði 1 prósent og 2 prósent hlutfalli af fríum fitusýrum hafi eyðilagt 99,9 prósent kórónuveirunar á um tíu mínútum.

Einar og samstarfsmenn hans hafa fengið samþykki vísindasiðanefndar fyrir rannsókn á áhrifum þessa efnis á menn. Innan skamms hefst rannsókn á Landspítalanum þar sem sýktum landsmönnum verður gefið lýsi með hærra hlutfalli frírra fitusýra.

„Við munum mæla hvort lýsið dragi úr veirumagni í munnholi og hálsi. Úrtakið er ekki stórt en nægir þó til þess að gefa vísindalegt svar,“ segir Einar í samtali við Fiskifréttir."

 


mbl.is „Stórkostlegar fréttir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Þetta er rétt, lýsi ver gegn, bæði vírus og bakteríu sýkingum. Er einnig góð vörn gegn öllum bólgusjúkdómum. Eru þeir ekki að nálgast 20.?

Haukur Árnason, 2.12.2020 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband