Leita í fréttum mbl.is

Covid reglur fyrir jólin!

,,Alma D. Möller land­lækn­ir hafði orð á því að til skoðunar væri að gefa út sér­stök til­mæli til fólks um hvernig best sé að haga hátíðahaldi yfir jól­in, að minnsta kosti hvað sótt­varn­ir varða." 

Það er óþarfi að finna upp hjólið og hægt að notast við leiðbeiningar fyrir Thanksgiving sem gefnar hafa verið út fyrir Kaliforniubúa. Þær eru löngu tilbúnar og Landlæknisembættið eflaust komið með svipaðar leiðbeiningar frá WHO sem það á að gefa út. En hér eru reglurnar fyrir Thanksgiving í Kaliforniu:


1. Halda boðið utandyra (í lagi að skjótast inn á klósettið ef það er sótthreinsað á milli).

2. Hámark þrjár fjölskyldur (househoulds) í boðinu. Ef t.d. amman sem heldur boðið á þrjú börn sem eiga fjölskyldur, verður hún velja tvær fjölskyldur (boðhaldarar teljast sem sagt ein fjölskylda.)

3. Boðið má ekki vara lengur en í tvær klukkustundir.

4. Vera með grímur allan tíman, nema rétt á meðan er verið að borða (en í lagi að taka niður ef maður fær astmakast, þarf að taka lyf eða fær svima).

5. Mælt gegn því að það verði sungið eða talað hátt og vera með grímur allan tímann.

6. Virða fjalægðarmörk og hafa minnst 1,8 metra á milli stóla.

7. Nota helst pappadiska og pappamál.

8. Þvo eða spritta oft og mörgum sinnum hendurnar.

9. Tónlistaratriði leyfð ef tónlistarmaðurinn kemur úr fjölskyldunni (en mælt er gegn hverskyns blásturshljóðfærum; lúðrum, flautum, munnhörpum o.s.frv.). 

10. Í lagi að dansa í kringum jólatréð svo lengi sem það er ekki sungið hátt og ekki haldist í hendur. Halda 2ja metra reglunni (ég bætti þessari við.)

Með öðrum orðum; haldið alveg drepleiðinlegt jólaboð. Næstu jól verða betri því þá verður erfðabreytta tilraunabóluefnið komið í hús.

Heimildir:

https://www.cdph.ca.gov/Programs/CID/DCDC/Pages/COVID-19/CDPH-Guidance-for-the-Prevention-of-COVID-19-Transmission-for-Gatherings-10-09.aspx

https://deadline.com/2020/11/california-coronavirus-gavin-newsom-issues-thanksgiving-restrictions-1234615516/

https://www.newsweek.com/coronavirus-california-gavin-newsom-new-rules-gatherings-thanksgiving-1541402


mbl.is Hefur áhyggjur af jólunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er alveg greinilegt að þú og engin i kringum þig hafa veikst af COVID 19  Á  meðan gasprar folk svona bull !

RAGNHILDUR H. (IP-tala skráð) 19.11.2020 kl. 12:57

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Sæl Ragnhildur, hvaða bull ertu að vísa í? Þetta eru reglur frá Kaliforniu í USA. Ég þýddi þær bara. 

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 19.11.2020 kl. 13:12

3 Smámynd: Sylvía

Af hverju ætli það sé betra að nota pappadiska? Fékk pappadisk og pappamál á Kaffitár um daginn...

Sylvía , 19.11.2020 kl. 14:47

4 identicon

"1. Halda boðið utandyra"

Á Íslandi í desember?

Trausti Geir Jónasson (IP-tala skráð) 19.11.2020 kl. 18:28

5 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Trausti, þessar leiðbeiningar eru fyrir Kaliforníu, oftast þokkalegt veður þar í nóv. Reikna með að það verði ekki þannig hér, en kannski hvatt til að opna gluggana! ;)  sá eitthvað um það í þessum leiðbeiningum líka. 

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 19.11.2020 kl. 20:33

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kalkúninn skal ekki elda í ofni heldur sjóða í spritti. Og vitanlega veiruprófa hann áður en hann fer í pottinn.

Þorsteinn Siglaugsson, 20.11.2020 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband