Leita í fréttum mbl.is

Og lækni sem gagnrýndi var sagt upp störfum!

Er ekki annars neyðarástand á spítölum? Vantar ekki heilbrigðisstarfsfólk? Var að fá þær fréttir að lækni sem hefur gagnrýnt sóttvarnaraðgerðir og þá sérstaklega gegn börnum og unglingum hafi verið sagt upp störfum í gær. Hún kom fram í útvarpi um daginn og setti af stað undirskriftarsöfnum til að skora á menntamálamráðherra að opna framhaldsskólana. Ísland er eina Norðurlandaríkið sem er ekki með staðarnám í framhaldsskólum. 

Hér er listinn.


mbl.is Aðgerðir hertar – tíu mega koma saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvaða læknir var þetta? Það þarf að koma fram, því ég veit að læknar eru almennt mjög hræddir við að koma fram og lýsa skoðunum sínum á vitleysunni.

Þorsteinn Siglaugsson, 30.10.2020 kl. 13:46

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Elísabet Guðmundsdóttir

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 30.10.2020 kl. 13:48

3 identicon

Að Elísabetu hafi verið sagt upp einungis vegna þess að hún vildi safna undirskriftum gegn covid-vitleysunni sýnir hvað þessi duglausa ríkisstjórn og strengjabrúður hennar á LHS eru tilbúin að vega að tjáningafrelsinu og starfsheiðri hennar.

Í hvert skipti sem aðgerðir eru hertar, fjölgar ætluðum smitum, sem ætti að gefa til kynna að réttum aðferðum hefur ekki verið beitt. Á sama tíma er verið að ljúga til um yfirfyllta spítala.

Kannski þegar langar raðir myndast fyrir utan allar verzlanir á landinu í fyrri hluta nóvember mun Svandís vera ánægð því að það minnir óneitanlega á ástandið í hinni sovézku paradís kommúnistanna.

Síðan, eftir 17. nóvember þegar spálíkanið segir að enn fleiri séu smitaðir og skimanirnar sem mæla aðallega gamlar og dauðar veiruleifar sem allir eru með án þess að vera meint af segir að allir hafi smitað alla, þá verður sett á útgöngubann og önnur borgaraleg réttindi afnumin. Nema fyrir ríkisstjórnina sjálfa og æðstu embættismenn.

Síðan, ef enginn gerir neitt, verður sett á bólusetningarskylda fyrir alla, þeir sem neita að láta sprauta í sig eitri verða úthrópaðir og einangraðir.

Ætli allir þessir grímuklæddu sauðir sem ganga um auðsveipir fari þá að vakna af værum blundi?

Hins vegar er stór hópur fólks sem berst gegn öllum þessum hræðsluáróðri og sá hópur fer vaxandi.

Stefán (IP-tala skráð) 30.10.2020 kl. 16:58

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Hún fékk þetta sms skömmu eftir útvarpsviðtalið á Sögu frá kollega:
,, Elsku Lísa. Farðu varlega í umræðunni á netinu og útvarpinu. Þótt auðvitað sé skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi þá gæti þetta komið sér illa fyrir þig í starfi þínu sem læknir. Þú veist að allt sem þú póstar er sent út sem tilkynning á alla sem þú þekkir gegnum facebook."

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 30.10.2020 kl. 17:33

5 identicon

Það á ekki að leyfa svona þöggun. Þetta er hrein og bein kúgun auk þess er þetta stjórnarbrot.

Stefán (IP-tala skráð) 30.10.2020 kl. 18:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband