Leita í fréttum mbl.is

Lögleysan afskrifuð

„Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri SFF: „Þessar tölur sýna að afskriftir til einstaklinga og heimila nema nú 52 milljörðum króna vegna fasteignaveðlána og bílalána."

Flott að bjóða mannskapnum upp á ólögleg lán og gefa síðan til kynna að það sé verið að létta undir með einstaklingum og heimilum með því að skila hluta af ólöglega gróðanum. Dæmi um þá brenglun sem hefur viðgengist hér á landi síðustu misseri.


mbl.is 27 milljarðar afskrifaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hvumpinn

Hárrétt hjá þér og aulagangur fjölmiðlamanna með ólíkindum að lepja þetta upp hrátt.  Ólögleg lán hækkuðu (hækkunin er þarmeð illa fengið fé) og þetta heitir leiðrétting en ekki "afskrftir" til skuldaranna.

Hvumpinn, 8.12.2010 kl. 12:15

2 identicon

Þegar tveir aðilar gera með sér ólöglegan samning, eru báðir aðilar að brjóta lög, ekki bara annar aðilinn. Ólögmætið snýr því ekki síður að þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem tóku lánin. Þegar krónan styrktist fannst fólki fínt að græða á því. Brenglunin felst ekki síður í því að sumt fólk virðist afneita með öllu að það tók áhættumeiri lán og borgaði því lægri vexti en íslensk lán buðu upp á.

Á endanum lendir þetta fiasco þeirra aðila sem gerðu með sér samninginn svo á öllum hinum sem ekki tóku þátt í þessu.

Mitt mat er að fólk sem telur að aðrir beri alla ábyrgð á sínum fjármálagjörningum eigi ekki að hafa fjárræði.

Crónan (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 12:33

3 Smámynd: Jónas Jónasson

Þessi fétt lýsir helvíts hrokanum í þessu hyski sem fengu niðurstöðu eftir pöntun frá Hæstarétti þann 16 september. Svo má passa sig á endurútreikningi bankans líka þar sem er verið að reyna að veiða alla í sömu gildruna aftur á fáfræði og skilningsleysi lántakandans. Það er að koma í ljós að flestir útreikningar bankana eru rangir og að sjálfsögðu reynt að fá fólk til að skrifa undir ranga útreikninga.

Jónas Jónasson, 8.12.2010 kl. 12:39

4 Smámynd: Jónas Jónasson

Crónan hringdu á 112 og láttu sækja þig strax!!

Jónas Jónasson, 8.12.2010 kl. 12:40

5 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Crónan, viltu meina að almenningur hafi mátt vita að lánin væru ólöglega gengistryggð lán í ísl. krónum en ekki lán í erlendri mynt eins og þau voru alltaf kynnt og seld. Því var meira að segja haldið fram fyrir rétti af lögmanni eignaleigufyrirtækjanna að lánin væru erlend og það er enn talað um að þau hafi verið erlend, m.a. í þessari frétt (ath. það er löngu búið að dæma að lánin hafi ekki verið erlend).  ..."... liggur fyrir að erlend bílalán og samningar hafa verið færð niður um 30 milljarða króna."

En á þessu má skilja að þú hafir vitað að lánin hafi verið ólögleg, þú ert vonandi ekki lögmaður sem þagði allan tímann, vitandi um lögbrotið.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 8.12.2010 kl. 12:42

6 identicon

Það er verið að skila ÞÝFI. En þetta er ein og afmörkuð aðgerð. Af hverju er ekki ráðist að kjarna vandans? Inn í grefi refanna? Það vilja refirnir ekki út af því að þá geta þeir ekki stolið með SJÁLFVIRKUM hætt í skjóli spilltra stjórnvalda. Hina séríslensku verðtryggingu verður að afnema! Þó hækka þyrfti vexti á móti þá er það skárra. Þá veit fólk að hverju það gengur. Núna eru fasteignalánin okkar að hækka út af hækkun opinberra gjalda og orkuverðshækkana. Á sama tíma eru fasteignir að lækka í verði. Á meðan almúginn tekur ekki til varna heldur hann áfram að bíta í skottið á sér eins og heimskur rakki!

Hrúturinn (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 14:22

7 identicon

Fólk vildi þessa samninga, valdi þessa samninga, kaus þessa samninga og SKRIFAÐI UNDIR þessa samninga. Svo varð fólk að gjalda fyrir heimsku sína þegar krónan lækkaði í verði, en viti menn, þá kemur björgun frá eigin heimskupörum úr lausu lofti. Samningarnir dæmdir ólöglegir. Þvílík heppni!

Chaos (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 21:24

8 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Merkilegt að þeir sem telja neytendur vera samseka skrifa ekki undir nafni. Samningarnir voru alltaf ólöglegir en færðir í löglega „búninga" eins og Hæstiréttur orðaði það 16.6.2010.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 9.12.2010 kl. 08:54

9 identicon

Sá sem kaupir sér happadrættismiða frá Nígeríu er heimskur. Breytir engu þó þeim sé síðan seinna bjargað fyrir horn með því að kaupin verði dæmd ólögleg. Heimskan og skömmin situr samt eftir.

Chaos (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 09:12

10 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Gott að þú gáfaði nafnlausi maður hafir vitað að eftirlitsskyldar fjármálastofnanir hafi verið að bjóða ólöglegar vörur með aðstoða FME, Neytendastofa og stjórnvalda.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 9.12.2010 kl. 10:04

11 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

leiðrétting: með aðstoð FME, Neytendastofu ...

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 9.12.2010 kl. 10:18

12 identicon

Hvort að fólk vissi að samningarnir væru ólöglegir ER EKKI POINTIРog skiptir ekki máli í því sem ég er að segja. Það að samningarnir voru dæmdir ólöglegir breytir ekki því sem STENDUR skrifað í samningunum og fólk skrifaði svo undir sjálviljugt. Ef það sem stendur í samningunum er ósanngjarnt, afhverju skrifaði fólk þá undir? 

Chaos (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 17:43

13 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Ertu til í að taka dæmi um eitthvað sem stendur í myntkörfulánsbílasamningi sem fólk hefði átt að sjá að væri sanngjarnt eða ósanngjarnt. Ég átti reyndar við ólöglegt. Spyr hvort fólk hefði mátt vita að lánin væru ólögleg.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 9.12.2010 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband