Leita í fréttum mbl.is

Er íslensk króna erlend mynt?

Doktor í hagfræði er spurður að því hvort  hrein krónulán með erlendu viðmiði standist íslensk lög. 
Dr. Gylfi Magnússon: Já lán í erlendri mynt eru lögmæt! Blush
Og í Kastljósi kvöldsins endurtók hann alltaf þetta sama svar. 
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

„Frú forseti. Í ljósi þessarar fyrirspurnar langar mig að spyrja hæstv. viðskiptaráðherra. Svo virðist sem myntkörfulánin séu í raun hrein krónulán en með erlendu viðmiði. Því spyr ég hæstv. viðskiptaráðherra: Telur hann lögmæti slíkra lána hafið yfir allan vafa þegar höfð eru til hliðsjónar lög nr. 38/2001, um vexti og verðbætur? Þar kemur fram að ekki megi miða lán við neitt annað en það sem þar stendur. Því spyr ég hæstv. viðskiptaráðherra: Telur hann lögmæti myntkörfulána hafið yfir allan vafa?"

Svar Gylfa: „Frú forseti. Ég vík fyrst að fyrirspurn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um lögmæti lána í erlendri mynt. Lögfræðingar bæði í viðskiptaráðuneytinu og annars staðar í stjórnsýslunni hafa vitaskuld skoðað það mál. Niðurstaða þeirra er að lánin séu lögmæt."

Hér kemur skýrt fram hvað Ragnheiður er að spyrja um, þ.e.: eru hrein krónulán með viðmiði við erlenda gjalmdiðla lögleg sbr. lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001?
Nákvæmlega svona voru hin „erlendu" lán markaðssett. Íslensk krónulán með bindingu við gengi erlenda gjaldmiðla seld sem „lán í erlendri mynt". Þessu var líka reynt að troða inn í hausinn á Hæstarétti. Endutaka lygina nóg oft....

mbl.is Mátti ekki dreifa minnisblaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Oddsson

Já, honum þótti fyrirspurning óþægileg, svo hann ákvað bara að svara annari spurningu :)

Þetta er vel þekkt bragð sem stjórnmálamenn hafa komist upp með í gegnum árin.

Annars var ansi gott viðtalið við Gylfa í Kastljósi í kvöld. Mér fannst Helgi taka ansi vel á kallinum bara.

Davíð Oddsson, 10.8.2010 kl. 21:30

2 identicon

Gylfi var eins og á grilli hjá Helga Seljan og stóð sig ömurlega að reyna að krafla sig út úr málinu. Gylfi er framtakslaus og gjörsamlega litlaus ráðherra sem situr í skjóli Samfylkingar og Jóhönnu.

HH (IP-tala skráð) 10.8.2010 kl. 21:33

3 identicon

Ég vorkenni Gylfa, held hann sé að vinna gegn sannfæringu sinni, eins og margir stjórnarliðar.

Stóra spurningin er: Hvað fékk þetta fólk til að taka 180 gráðu viðsnúning?

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 10.8.2010 kl. 21:46

4 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Ég vona reyndar frekar að hann sé að vinna gegn sannfæringu sinni heldur en fyrir fjárfesta (af tvennu illu): http://www.smugan.is/pistlar/adsendar-greinar/nr/3630

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 10.8.2010 kl. 22:16

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl verið þið. Það er orðið ljóst að hér stjórna einhverjir aðrir en ættu að stjórna toga í spotta þegar þeim sýnist og snúa fólki á sitt band eins og Viðar réttilega nefnir þetta er ég búin að segja ítrekað og kalla það mafíu bankana og þjófana sem hér stálu öllu úr kerfinu og vaða uppi eins og ekkert hafi í skorist nýjasta dæmið er Stöð-2 sem bauð í handboltaleiki silfurstrákana með hjálp bankans sem Jón Ásgeir stjórnar!

Sigurður Haraldsson, 10.8.2010 kl. 22:55

6 identicon

Þórdís, Jón Þór spyr í þessum pistli: "hvað Gylfi gerir þegar hagsmunir almennings og hagsmunir fjárfesta fara ekki saman?"

Svarið víð því er komið, Gylfi tekur málstað auðvalds-mafíunnar. Það staðfestist endanlega eftir stóradóm Hæstaréttar þegar Gylfi réðist gegn almennig með Seðlabanka og FME að vopni.

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 10.8.2010 kl. 23:10

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

En hvað með starfsleyfin? Ég er enn að bíða eftir að Gylfi efni loforðið frá Borgarafundinum og fylgi því eftir hvernig á því stóð að FME hefur látið viðgangast um árabil að mörg fjármálafyrirtæki hafa stundað tiltekna leyfisskylda starfsemi án þess að hafa til þess fullnægjandi starfsleyfi. (Sjá hér í seinni hluta myndskeiðs)

Guðmundur Ásgeirsson, 11.8.2010 kl. 02:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband