Leita í fréttum mbl.is

Skilaði Avant virðisaukaskattinum?

Avant gaf ekki út sölureikninga fyrir þúsundum bíla sem félagið seldi einstaklingum á kaupleigu. Reikningur átti að vera fylgiskjal með kaupleigusamningi sbr. lið lV í samningi en var ekki. Var vsk-inum sem kaupendur greiddu skilað til Skattsins? Sömu sögu er að segja af SP- fjármögnun, reikningana „gleymdist" að gefa út.
mbl.is Askar óska eftir slitameðferð - bráðabirgðastjórn skipuð í Avant
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bílaumboðið gefur út reikning með vsk og skilar til skattsins. Ég á bágt með að trúa að Ríkisskattstjóri hafi ekki haft eftirlit með að fjármögnunarfélögin væru ekki að innskatta nema þeir útsköttuðu líka. En eftir hrun trúir maður svo sem nánast hverju sem er upp á ansi marga þ.m.t. skattaeftirlitið.

Björn (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 17:34

2 identicon

Rétt, bílaumboðið gefur út reikning á fjármögnunarfyrirtækið, þar er vsk. útskattur hjá bílaumboðinu og innskattur hjá fjárm.fyrirtækinu. Síðan á fjárm.fyrirtækið að gefa út reikninga á okkur sem keyptu af þeim bílana, þá er vsk útskattur hjá fjárm.fyrirtækinu. En síðari reikningarnir voru ekki gefnir út. Þetta virðist hafa farið framhjá Skattinum rétt eins og ólöglega gengistryggingin fór framhjá FME og fleirum. A.m.k. var Skatturinn hissa eða þóttist a.m.k. vera það. Lýsing virðist þó hafa gefið út sína reikninga.

Þórdís (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 18:04

3 identicon

hefurðu eitthvað fyrir þér í því að fjármögnunarfyrirtækin hafi innskattað bílana? Þó þú fáir reikning með vsk. er ekki sjálfgefið að þú innskattir.

Rikki (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 23:46

4 identicon

Veit að það er ekki sjálfgefið en hvers konar bókhald eru þau með?

Þórdís (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 23:58

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl verið þið við erum í stríði við mafíu mafían er stjórnvöld og bankakerfið sem ver stóreignamenn útrásarvíkinga og einkavini!

Sigurður Haraldsson, 14.7.2010 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband