Leita í fréttum mbl.is

Á ekki að draga skattinn frá líka?

Í útreikningum sínum ættu Avant og SP-fjármögnun einnig að draga frá fjárhæð virðisaukaskattsins sem fólk borgaði vegna bílkaupa af þeim á svokallaðri kaupleigu. Fyrirtækin gáfu aldrei út sölureikninga til einstaklinga og hafa því varla skilað skattinum.  Skv. Skattinum og skv. samningum átti sölureikningur að vera fylgiskjal en var það ekki, sjá lið V í SP kaupleigusamningum og lið lV í Avant kaupleigusamningum.  Sjá nánar hér.

 


mbl.is Miða við lægstu vexti á hverjum tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stórfurðulegt allt saman. Nú þegar lánin halla á lánveitendur er í lagi að endurskoða kjörin. Á meðan allt hallaði á lántaka var ekki við það komandi að skoða ákvæði sem á að verja báða aðila gegn breyttum forsendum sem gera lán ósanngjörn. Held ekki að þessi fyrirtæki verði látin greiða þessa skatta. Yfirvöldum eða almenningi verður kennt um og þeir látnir falla niður.

Merkúr (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 09:56

2 Smámynd: Steinar Immanúel Sörensson

Ríkisstjórn sem brýtur vísvitandi á Stjórnarskránni er fallin, henni ber tafarlaust að víkja þvi hún getur ekki haft umboð til að starfa fyrir þjóðina þvi umboðið felst í þvi að starfa skv Stjórnarskránni.

Því er það mitt mat sem lögdindils að Ríkisstjórnin hafi nú með þvi að samþykkja tilmæli Seðlabanka og Fmr sagt af sér

Steinar Immanúel Sörensson, 30.6.2010 kl. 14:55

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Merkúr: Þetta snýst ekki bara um það hvort einhver græðir eða tapar. Lánafyrirtækin hafa sjálf gengið hart fram gegn almenningi sem á undir högg að sækja, og hafa borið því fyrir sig að burtséð frá forsendubresti og beinlínis neyðarástandi skuli gerðir samningar standa. Nú hefur hæstiréttur úrskurðað tiltekin ákvæði slíkra samninga ógild, og þá er það eina sem ætlast er til að samræmis verði gætt og gerðir samningar standi að því marki sem lög leyfa. Ekkert tvöfalt siðgæði takk!

Guðmundur Ásgeirsson, 1.7.2010 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband