Leita í fréttum mbl.is

Orðalag samninga!

„Óvissa ríkir um lögmæti annarra lána þar sem orðalag lánasamningsins og framkvæmd lánveitingarinnar er með öðrum hætti".

Merkilegt að orðalagið skuli skipta svona miklu máli. Var lánað í erlendri mynt eða ekki? Nú vitum við að bankarnir áttu í miklum erfiðleikum með að fjármagna sig erlendis á árunum fyrir hrun og því var Icesave reikningunum m.a. komið á  árið 2006.  M.ö.o. það var hér mikill skortur á erlendum gjaldeyri og því var að sjálfsögðu ekki verið að lána einstaklingum og fyrirtækjum hér heima útlenskan gjaldeyri.

En hér er líka grein um endurútreikninga eftir Gunnlaug Kristinsson endurskoðanda.  


mbl.is Arion banki endurreiknar lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Thetta voru òlögleg svikalàn og ekkert annad. Arionbanki getur bara afskrifad thau. Engir sèrfrædingar, hvorki vid Hàskòla Ìslands nè Hàskòla Reykjavìkur treystu sèr til ad endurreikna thau og vidskiptaràdherra lìdur eins og hàlfvita, thegar hann reynir ad skilja endurùtreikningana og er vìst ekki einn um thad. Thad mun thvì aldrei verda hægt ad treysta endurùtreikningunum. Bankarnir eru thegar bùnir ad hagnast gìfurlega à thessum gengislànum sìnum.

Eina von okkar lànthega er, ad ESA dæmi thennan ògjörning òlöglegan.

Stefàn (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 13:14

2 Smámynd: Guðmundur K Zophoníasson

Þetta er einmitt málið orðalagið skiptir nær engu máli. Eðli lánanna skipir öllu, ef svo væri ekki gætu bankarnir bara haldið áfram gengistengdum lánum í íslenskum krónum með breyttu orðalagi og ógnað þannig stöðugleika þjóðarbúsins áfram. Ein ástæða þess að gengistengd íslensk lán voru bönnuð á sínum tíma var ógnin við fjármálalegan stöðugleika.

Guðmundur K Zophoníasson, 15.6.2011 kl. 13:18

3 identicon

Annað mál. Þetta eru 2000 lán sem á að endurreikna. Ef við gefum okkur að það séu að meðaltali 20 vinnudagar í mánuði og því 80 vinnudagar fram í miðjan október þá ætla þeir að vinna 25 lán á dag. Hélt að Arion banki ætti nokkuð öflugar tölvur sem gætu afkastað meira en þessu? Ekki ætla þau að handreikna þetta? Eða er bara verið að tefja málið eins og hægt er...

Páll (IP-tala skráð) 15.6.2011 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband