Leita í fréttum mbl.is

Peter McCullough læknir - meðferð gegn Covid var þögguð niður!

mccullough-2020Var að hlusta á þennan bandaríska lækni, Peter McCullogh, sem heldur því fram að það séu og hafi verið til margskonar lyf og meðferðir fyrir Covid sjúklinga, en þeir alltaf sendir heim eftir jákvætt PCR próf, með engar leiðbeiningar eða ráð fyrir meðferð sjúkdómsins. Hann segir þetta skandal og að allar upplýsingar um meðferðir og lækningu hafi verið þaggaðar niður.

McCullough told the committee about a typical patient journey—stories they had already heard from family members and friends. High risk patients, over age 50 and with medical problems go to testing centers or urgent care clinics acutely ill, are handed a positive COVID-19 test result and are told to go home and wait in fear until they cannot breath any longer and then succumb to panicked hospitalization and isolation from family members, some of whom never see their loved ones again.

Aðrir áhugaverðir punktar komu fram hjá honum, t.d. að hjarðónæmi í Texas væri í kringum 80%, einkennalausir smiti ekki, náttúruleg sýking af Covid veiti varanlegt og fullkomið ónæmi (og því út í hött að bólusetja þá sem hafa veikst), að bólusetja heilbrigt fólk undir fimmtugu væri algjörlega á skjön við læknavísindin, og ýmislegt fleira.

Mér varð hugsað til þessarar íslensku konu sem var látin liggja heima fárveik í 44 daga. Fékk hún enga meðferð, engin lyf? 

McCullough segir líka að upplýsingar sem hann setti á vefinn um lækningu og meðferðir gegn Covid, hafi verið hent út.

Í raun frábært dæmi um "fakt-tékk" internetsins í dag. Auðvitað er ekki verið að stöðva bara falsvísindi heldur virðist markmiðið líka vera að loka á upplýsingar um (snemm)meðferðir eða aðra lækningu sem virka gegn Covid. Eina sem internetið leyfir afskiptalausa umfjöllun á, er ný tegund bóluefnis sem ekki hefur verið notað á mönnum fyrr og er enn á rannsóknarstigi. (Follow the money!)

Skilst að Ivermectin sé eitt þessara lyfja sem gagnast mjög vel við sjúkdómnum, nokkuð sem íslenskur læknir í Svíþjóð hefur skoðað vel. Honum var gert að eyða út færslum um lyfið.

Og ekki mátti Lýsi hf. auglýsa vöru sína sem vörn gegn veiru, þó að við vitum öll að Lýsi er það meðal sem hefur varið okkur gegn veikindum í áraraðir. En Lýsi hf. mátti ekki fullyrða það, en í lagi þykir að fullyrða að lítt prófað tilraunabóluefni sé fullkomlega öruggt, þrátt fyrir ýmsar aukaverkanir sem hafa verið mun fleiri en reiknað var með. Lyfjastofnun heldur upplýsingum um tegund aukaverkana þétt að sér, þær eru ekki tilgreindar á síðu þeirra. Það tíðkast aftur á móti í öðrum ríkjum, þ.e.a.s. að gera grein fyrir tegund aukaverkana, ekki bara birta súlur í bláu og fjólubláu!

p.s. twitter leyfir mér t.d. ekki að setja inn þetta myndband með Cullough. Why not? Er hann falsvísindamaður?  Hámenntaður læknir!


Landlæknir Breta skýrir veiruhættuna svona....

witty,,Sóttvarnarlæknir fer fram á að ákvörðun hans um að fólkið sæti sótt­kví á sótt­kví­ar­hót­eli verði staðfest. Það sé mat hans og ráðherra að aðgerðin gangi ekki lengra en nauðsyn­legt er til að hefta út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar og vernda lýðheilsu."
 
Svona lýsir landlæknir Breta, sem einnig er faraldsfræðingur, pestinni: 
 
,,Most people will not get this virus at all. Of those who get symptoms, the vast majority will have a mild or moderate disease. The great majority of people, even in the highest risk groups, will not die."
-Chris Whitty Mars 2020."
 
Hljómar þetta eins og stórhættulegur heimsfaraldur og hvernig kemur þessi lýsing heim og saman við allar skelfilegu fréttirnar sem hafa borist frá Bretlandi?
 
Svona hljóðar lýsing Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á sjúkdómnum:
"Most people infected with the COVID-19 virus will experience mild to moderate respiratory illness and recover without requiring special treatment.  Older people, and those with underlying medical problems like cardiovascular disease, diabetes, chronic respiratory disease, and cancer are more likely to develop serious illness."
 
Og svo ein staðreynd héðan af Íslandi. Ekkert barn eða ungmenni hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna Covid, ekkert. Ekki heldur af breska afbrigðinu. Ekkert barnanna í Laugarnes-eða Laugalækjaskóla er veikt. Núll.
 
Önnur staðreynd. Búið er að bólusetja gamla fólkið. Um það snérust sóttvarnaraðgerðir í upphafi, verja þá gömlu.
 
Einn liggur á spítala vegna Covid, og það er skipverji á súrálsskipi frá Brasilíu. Hann er sagður vera með brasilíska afbrigðið sem Brasilíubúar kannast sjálfir lítið við.
 
Jón Ívar læknir hefur skoðað gögn frá Noregi um spítalainnlagnir barna sem sýna að börnum stafi ekki hætta af breska afbrigðinu. 
 
Ef breska afbrigðið væri jafn hættulegt og sóttvarnarlæknir og landlæknir halda fram, sem segjast styðjast við rannsóknir frá Noregi, hefði til dæmis forsætisráðherra Noregs sem er alltof feit og þar af leiðandi í áhættuhópi ekki verið með partý og brotið reglurnar.
 
Það hefur verið áberandi hversu margir ráðamenn og stjórnmálamenn í heiminum hafa brotið sóttvarnarreglur. Kannski vegna þess að þeir vita hver hin raunverulega hætta er. Þetta er oft sama fólkið og heldur uppi hræðsluáróðri sem er í engum takti við hættuna. 
 
 
Uppfært: skv. þessari frétt viriðst skipverjinn sem lá inni vera útskrifaður. 
 

mbl.is Þórólfur hefur skilað inn kröfugerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. apríl 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband