Leita í fréttum mbl.is

Framhald - hvað varð um flensuna - er Covid flensa?

kertiÉg setti inn þessa færslu fyrir stuttu til minningar um gömlu góðu" inflúensuna sem hvarf í apríl á síðasta ári.  Inflúensan er auðvitað ekkert góð, því hún dregur fjölda manns til dauða á ári hverju. Það hafa aftur á móti ekki birst tilkynningar í fjölmiðlum með myndum af kertaljósum í hvert sinn sem einhver deyr af völdum flensunnar og hvað þá að forseti Íslands sendi aðstandendum hinna látnu samúðarkveðjur. Við höfum heldur ekki vanist því að fjölmiðlar færi okkur sögur af þeim sem veikjast illa af inflúensunni eða glími við eftirköst, ekki einu sinni í svínaflensunni þar sem fjöldi manns barðist við eftirköst.

Maður heyrði þó alltaf af því þegar hún mætti til leiks, það kom í fréttum. En svo ekki mikið meir. Engir vikulegir upplýsingafundir í sjónvarpinu með nýjustu smittölum, smitstuðlum eða annað. Maður vissi ekki einu sinn hvers lenskt afbrigðið var!

Hvað er inflúensa? Svarið er á vef Landlæknis:
Inflúensa er alvarlegur sjúkdómur, sérstaklega hjá þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Hún getur auðveldlega borist á milli einstaklinga og smitað mjög marga á stuttum tíma eins og við sjáum á hverjum vetri. Sjúklingar sem eru með hjarta eða lungnasjúkdóma eða aðra alvarlega undirliggjandi sjúkdóma eru í meiri hættu á að fá alvarlegar sýkinga vegna inflúensunnar og bakteríulungnabólgu í kjölfarið. Almennt eykst dánartíðni töluvert meðan og fyrst á eftir að inflúensufaraldrar ganga yfir.

Lýsingin gæti átt við annan sjúkdóm, Covid-19.

Ég rakst á þessa spurningu frá einum á twitter sem heitir Anthony J. King, D.M.A. og kynnir sig sem prófessor og tónlistarmann. Hvað varð um flensuna spyr hann?

What happened to the flu? Ég las ca. fyrstu 100 svörin af um 600. Kannski er það aðallega samsæris-og efasemdarfólk sem eltir hann og svarar. Þið getið lesið svörin, smellið á linkinn. Get ekki betur séð en að um það bil 90% svarenda telji Covid vera inflúensuna sem horfið hefur nánast alls staðar nema í Kína, þar sem Covid er aftur á móti horfið.
 
Árið 2018 var til dæmis "killer flu" á Bretlandi með 42% aukningu í dauðsföllum í janúarmánuði. Er þetta hugsanlega spurning um markaðssetningu á sjúkdómi og endurmörkun (e. rebranding)? Því fáir myndu væntanlega sætta sig við að vera stungið í  sóttvarnarhús vegna gruns um flensusmit, skólum væri lokað, grímuskyldu, sóttkví, einangrun, sýnatökur, samkomubönn, nánast engar skemmtanir, skrá niður nafn, kennitölu og símanúmer á veitingahúsum og í kirkjum, o.s.frv. Vegna inflúensu!
 
Ég get a.m.k ekki fallist á þá skýringu að sóttvarnir hafi þurrkað út hina bráðsmitandi flensu en nái ekki að stöðva Covid.
 
p.s. munið myntkörfulánin. Þau voru markaðssett sem lán í erlendri mynt. Allir voru að fá útlensk lán. En viti menn, svo voru þetta bara ómerkilegar íslenskar krónur sem búið var að tengja ólöglega við erlenda gjaldmiðla. Og oftast sérfræðingar sem mæltu með lánunum.
killer

Breska afbrigðið ekki hættulegt börnum - skoðið heimildir!

jonivar„Ég er bara að benda á að við erum núna með af­brigði sem leggst af aukn­um þunga á börn og ung­menni og það get­ur áhrif á það hvenær hjarðónæmi telst náð,“ seg­ir for­sæt­is­ráðherra.

Jón Ívar Einarsson læknir segir þetta rangt og birtir þessi skrif á sinni facebook í dag:

Og hér er frétt af rúv af mjög veikum leikskólabörnum eða þannig. Einkenni varla merkjanleg! En ef pólitíkusar sem eru þjálfaðir í að ljúga segja eitthvað sem hræðir fólkið og það varðandi börnin þeirra (sem er virkilega illa gert, sérstaklega ef það á ekki við rök að styðjast), þá verða menn hræddir, a.m.k. þeir sem ekki nenna að skoða annað en rúv og Reuters. Það hefur ekkert barn eða ungmenni lagst á spítala hér heima vegna covid, ekki vegna kínverska afbrigðisins, ekki vegna breska og ekki vegna neins Covid afbrigðis! Það er einn inniliggjandi vegna Covid í dag og það er skipverji á brasilísku súrálsskipi.

Barnasmistjúkdómalæknir segir börn ekki í hættu, sjá hér.


mbl.is Nýi óvissuþátturinn í bólusetningunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. apríl 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband