Leita í fréttum mbl.is

Starfsmaðurinn fylltist öryggiskennd eftir neikvætt PCR próf!

harpaUpplýsingafundi vegna nýs smits hjá starfsmanni Landspítalans og sóttkvíar annarra þar af leiðandi, var að ljúka. Starfsmaður þessi fór  á tónleika í Hörpu í gærkvöldi og því stendur yfir smitrakning meðal annarra tónleikagesta. Athygli vakti í lokin spurning fréttakonu RÚV til Þórólfs: ,,Rauf starfsmaður spítalans einangrun með því að fara á tónleikana í Hörpu?" Fréttakona virtist vita eða telja að starfsmaðurinn ætti bókaðan tíma í sýnatöku og niðurstaða lægi því ekki fyrir. Þórólfur sagði þá að starfsmaðurinn hafi ekki verið búinn að bóka tímann en hafi fengið neikvæða niðurstöðu úr sýni nokkrum dögum áður og við það hafi viðkomandi fyllst öryggiskennd!

En átti starfsmaðurinn eftir að fara í síðari sýnatökuna? Það er eitthvað sem vantar inn í söguna. Ef starfsmaðurinn var búinn að fá neikvætt svar nokkrum dögum fyrir tónleikana, var hann samt smitaður og því fer nú fram smitrakning? Var það sýnataka eitt eða tvö? ,,Þau sem hafa ekki verið bólusett þurfa að fá tvær neikvæðar niðurstöður með viku millibili áður en þau losna úr sóttkví."

Fundi var slitið fljótlega, heyrðist að sóttvarnarlækni hafi vafist þarna tunga um tönn. En hann virtist hafa miklar áhyggjur af nýrri bylgju og hópsmiti.

Síðan væri áhugavert að vita hvers vegna þessi starfsmaður spítalans var ekki bólusettur; er það læknir, hjúkrunarkona eða...? Og eins með tilliti til þess hvort hann eða hún hafi rofið einangrun eftir að fyllast öryggiskennd eftir neikvæða niðurstöðu úr (fyrri?) sýnatökunni.


Óbólusettir starfsmenn á smitsjúkdómadeild - en fólk á grafarbakkanum bólusett!

LSH50 manns í sóttkví þar á meðal starfsmenn spítalans, bólusettir og óbólusettir.

,,Starfsmaðurinn vinnur á göngudeild smitsjúkdóma, ofnæmis og lungnasjúkdóma. Már segir að sjúklingahópurinn sem þarna sækir þjónustu sé viðkvæmur."

Þarfnast þetta ekki frekari útskýringa? Ekki til nóg bóluefni eða afþakkaði hann og jafnvel fleiri starfsmenn? Það væri áhugavert að heyra hvort læknar og / eða hjúkrunarfólk hafi ekki viljað tilraunabóluefnið. Var það Pfizer eða þetta með apaveirunni?

,,Ekki er búið að bólusetja alla starfsmenn þar sem ekki hefur fengist nógu mikið af bóluefnum til að bólusetja allt starfsfólk sjúkrahússins. Í fyrstu atrennu voru framlínustarfsmenn bólusettir. „Það er hörgull á bóluefni og allir finna fyrir því.“

En nýbúið að boða fólk á tíræðisaldri sem margt býr heima hjá sér. Og eins og við höfum heyrt forstjóra Lyfjastofnunar greina frá, að þá virðist fólk sem var á grafarbakkanum hafa verið bólusett. Þykir þetta fagleg forgangsröðun?

Og fleiri en einn starfsmaður spítalans ekki bólusettur?
,,Fólk sem er búið að bólusetja getur snúið aftur til starfa þegar það fær neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku. Þau sem hafa ekki verið bólusett þurfa að fá tvær neikvæðar niðurstöður með viku millibili áður en þau losna úr sóttkví."

Það þarf sem sagt að skera úr um að bólusettur einstaklingur sé ekki smitaður! Hvað segir það um bóluefnið? Og skyldi PCR prófið á þeim smitaða hafa verið 40 snúninga sem margir telja ómarktækt. Allt yfir 35 þykir mjög veikt. WHO sendi frá sér nýjar leiðbeiningar  20. janúar sl. þess efnis að skoða þurfi sérstaklega vel veikar niðurstöður PCR prófa. 

Uppfært: „Það eru tiltölulega fáir starfsmenn á þessari deild búnir að fá bólusetningu."

Þetta verður áhugaverðara með degi hverjum, eru það kannski læknar og heilbrigðisstarfsmenn sem síst vilja taka inn erfðabreytta tilraunabóluefnið? En mæla með fyrir aðra!

 


mbl.is 50 af spítalanum í sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. mars 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband