Leita í fréttum mbl.is

Þurfum ekki Guðna Th. eða Vigdísi til að auglýsa!

gudni,,94% lands­manna hafa þegið eða hyggj­ast þiggja bólu­setn­ingu gegn Covid-19. Þetta kem­ur fram í könn­un sem MMR fram­kvæmdi á tíma­bil­inu 5. til 10. mars 2021."

En ekki hvað! Þetta er þjóðin sem nánast grátbað um að fá að taka þátt í tilraun hjá Pfizer, en samningar náðust ekki. Faraldurinn hafði verið kveðinn í kútinn skv. Pfizer. Sjá grein hjá Kára

Það að Pfizer hafi álitið faraldurinn hér á landi liðinn hjá er merkilegt í ljósi þess að yfirvöld vilja bólusetja alla þjóðina. Getur verið að stór hluti þjóðarinnar sé kominn með ónæmi og þurfi ekkert bóluefni eða hvað átti Pfizer við? Það er ekki eins og allir sem komust í snertingu við veiruna (veirurnar, alltaf að koma nýjar) hafi legið í rúminu, sumir sluppu með kvef og hafa ekkert endilega hlaupið í skimun. Rannsóknarstofan Sameind vill meina að veikin hafi verið á ferðinni mun fyrr en mælingar hófust, eða frá því í janúar 2020.

Joe Biden, aftur á móti, grátbiður sína landa að fara í bólusetningu, segir þá geta fengið sjálfstæði frá veirunni á þjóðhátíðardaginn næsta, 4. júlí! Og fólk geti þá komið saman og grillað, ekki endilega í stórum hópum en a.m.k. litlum. 

Og eins og mbl.is sagði frá í dag að þá eru fyrrum forsetar Bandaríkjanna og makar þeirra komnir í auglýsingaherferð líka, hvetja fólk til að fara í sprautu. Þetta er stórmerkilegt vegna þess að Bandaríkjamenn hafa farið skv. helstu fréttum, hvað verst út úr covid. Og það þarf að reka þá í sprautu! Hér heima þar sem dánartíðni 2020 var nánast lægri en á árunum áður og meðalaldur látinna 88 ár, grátbiður fólk um að vera með í tilraun lyfjafyrirtækjanna. Þurfum ekki Guðna eða Vigdísi til að auglýsa hér.

Eflaust spilar það inn í, að hræðsluáróðurinn á Íslandi hefur verið með ólíkindum, sérstaklega hjá Kára Stefánssyni. Og svo erum við með þríeykið sem margir hér heima myndu ganga í sjóinn fyrir. Algjörlega ómissandi fólk, sérstaklega Víðir sem sjálfur lenti í hópsmiti! 

p.s. mér var bent á að ég gleymdi Ólafi Ragnari, útrásarforsetanum sjálfum.


mbl.is Lítill hluti hyggst afþakka bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. mars 2021

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband