Leita í fréttum mbl.is

Embættismenn fyrirskipa öldruðum í sóttkví og sýnatöku!

gömulSam­ráðshóp­ur um starf­semi hjúkr­un­ar­heim­ila mæl­ir alfarið gegn því að íbú­ar fari í boð til ætt­ingja og vina á aðventu, jól­um eða ára­mót­um. Tekið er fram í leiðbein­ing­um til hjúkr­un­ar­heim­ila að eft­ir slíkt boð þurfi íbúi að fara í sótt­kví með ætt­ingja á hans heim­ili og sýna­töku að sótt­kví lok­inni, áður en heim­ild verður veitt til þess að hann fái að koma aft­ur inn á hjúkr­un­ar­heim­ilið. Undir bréfið skrifar Neyðarstjórn Hrafnistu. Á heimasíðu Hrafnistu segir að tilmælin séu komin frá Landlækni og sóttvarnaryfirvöldum. Á bréfinu sjálfu segir aftur á móti að tilmælin séu frá Almannavörnum og sóttvarnaryfirvöldum. Þríeykinu sem sagt.  

Ekki nóg með að núverandi reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnarreglur sé líklega brot á stjórnarskránni heldur eru embættismenn farnir að semja sín eigin tilmæli um sóttkví og sýnatökur og senda út eins og ekkert væri sjálfsagðara.

Hér er þríeykið að fyrirskipa útgöngubann á hjúkrunarheimilum yfir jól og áramót. Ef íbúar ætla sér að skreppa til ættingja verða þeir að vera í burtu í fimm daga a.m.k. og ekki snúa aftur nema þeir geti sýnt fram á neikvætt PCR próf! Þetta kemur auðvitað í veg fyrir að fólk sem ekki getur verið lengi frá hjúkrunarheimilinu af ýmsum ástæðum, geti skroppið í jóla- eða áramótaboð til ættingja sama hversu margir eru á því heimili, jafnvel bara maki þess. 

Skv.reglugerð heilbrigðisráðuneytissins eru þeir skyldaðir að fara í sóttkví sem hafa umgengist einstaklinga með Covid-19 og eins þeir sem koma til landsins (val á milli sóttkvíar eða sýnatöku og smitgáttar). 

En í þríeykislögregluríkinu Íslandi eru sett fram tilmæli um að fólk sem ekki hefur verið sýnt fram á að hafi komist í snertingu við smit, sé sett í sóttkví bara sí svona og sýnatöku. Annars megi það ekki koma aftur heim til sín! Eins kemur fram í bréfi Hrafnistu að ekki verði hægt að bjóða maka eða öðrum ættingjum að borða með íbúum yfir hátíðirnar.

Og já, í gær fundust sem sagt fimm ný smit og enn ríkir neyðarástand á landinu samkvæmt nýja-norms litakorti Almannvarna (Smáralind og Kringlan reyndar pakkfull). Og þá er nauðsynlegt að loka gamla fólkið inni yfir jól og áramót!

Það ber auðvitað engum að fara eftir þessu rugli. Fólkið má skreppa í jólaboð og fara aftur heim til sín þegar það vill án þess að láta skipa sér í sóttkví eða sýnatöku samkvæmt einhverjum tilmælum embættismanna.


mbl.is Fá ekki að fara í heimsóknir um jól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. desember 2020

Höfundur

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband