31.10.2022 | 00:09
Áhrifamáttur Túrmerik
Vísindin hafa sýnt fram á að túrmerik er jafn áhrifaríkt til lækninga og a.m.k. 14 hefðbundin lyf.
Túrmerik er ein af þeim jurtum sem til er í dag og hefur verið rækilega rannsökuð. Eiginleikar jurtarinnar til lækninga ásamt innihaldsefnum hennar (aðallega curcumin) hafa verið viðfangsefni meira en 12.000 ritrýndra og birtra líflæknisfræðilegra rannsókna.
GreenMedInfo (GMI) hefur gert fimm ára rannsókn á þessari helgu plöntu og fundið meira en 800 mögulegar leiðir til að nýta hana, bæði til lækninga og sem fyrirbyggjandi, auk 250 mismunandi gagnlegra lífeðlisfræðilegra áhrifa.
Miðað við hversu margar rannsóknir eru gerðar á þessari merkilegu plöntu er engin furða að vaxandi fjöldi rannsókna hafi komist að þeirri niðurstöðu að hún standist vel samanburð við margs konar hefðbundin lyf eins og:
Lipitor/Atorvastatin sem er kólesteróllyf og notað fyrir sykursyki 2, steralyfið Corticosteroids, Dexamethasone sem notað er við bólgusjúkdómum, ofnæmiseinkennum o.fl., Prozac/Fluoxetine og Imipramine sem gefin eru við þunglyndi, aspirín (sem blóðþynnandi), og ýmis bólgueyðandi lyf eins og aspirín, ibuprofen, sulindac, phenylbutazone, naproxen, indomethacin, diclofenac, dexamethasone, celecoxib og tamoxifen.
Einnig hafa rannsóknir sýnt að túrmerik standist samanburð við lyfið Ozalipltain (notað í krabbameins-meðferð) og sykursýkislyfið Metformin.
Hægt er að hlaða niður upplýsingum um túrmerik í PDF skjali.
Nánar um rannsóknir og áhrif túrmerik má lesa hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2022 | 00:01
Fuglinn flýgur eftir okkar reglum
Thierry Breton, framkvæmdastjóri innri markaðar hjá ESB, sagði að Twitter verði að fljúga eftir reglum ESB. Þetta sagði hann eftir kaup Elon Musk á Twitter fyrir 44 milljarða dollara.
Tæknifyrirtæki munu standa frammi fyrir meiri þrýstingi um að fjarlægja ólöglegt efni samkvæmt lögum ESB um stafræna þjónustu og geta fyrirtæki verið sektuð um allt að 6% af alþjóðlegum árstekjum félagsins fyrir brot á reglunum. Gert er ráð fyrir að reglurnar taki gildi árið 2024.
Fuglinn er frjáls, tísti Musk eftir kaup sín á Twttier og sem svar við því tísti framkvæmdastjórinn Breton: Í Evrópu mun fuglinn fljúga eftir reglum okkar.
Musk hefur áður sagst styðja algjört tjáningarfrelsi og segist vilja breyta Twitter í stafrænt bæjartorg með færri takmörkunum á því sem má segja.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2022 | 12:53
Leið hjartans - ný bók eftir Guðrúnu Bergmann
Guðrún Bergmann rithöfundur og heilsu-og lífstílsráðgjafi hefur gefið út nýja bók - Leið hjartans.
Í bókinni fjallar Guðrún um það framþróunarferli sem mannkynið er að fara í gegnum, sem kallað hefur verið VITUNDARVAKNINGIN MIKLA og ætluð er að vekja okkur til vitundar um alla þá duldu hæfileika sem mannfókið býr yfir en hefur hingað til verið ómeðvituð um. Við erum nefnilega mun öflugri en við höldum, segir Guðrún.
Jörðin er að fara í gegnum sínar breytingar í sólkerfinu, því hún er á leið inn í Ljóseindabeltið. Hún var þar síðast á tímum Atlantis. Framundan eru miklar umbyltingar, niðurbrot gamalla kerfa og uppbygging nýrra og algerlega ólíkra kerfa.
Nýju kerfin þarf að reisa með víðsýni, umburðarlyndi og samkennd. Til að geta gert það þurfum við að læra að hugsa með hjartanu, rétt eins og höfðinu, og virkja markvisst kærleiksorkuna í okkur sjálfum, segir Guðrún.
Þess vegna kallar Guðrún bókina LEIÐ HJARTANS.
Bókin er komin úr prentun og dreifingu og fæst í Penninn Eymundsson - Betra-líf og svo er útgáfutilboðsverð á vefsíðu Guðrúnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2022 | 18:45
Grímuskylda fallin úr gildi skv. þýskum sóttvarnarlögum
Samkvæmt þýskum fjölmiðlum var grímuskylda í millilandaflugi felld niður að miðnætti 23. sept., eða um 7-8 klst. áður en vélin til Munchen, sem Margrét Friðriksdóttir ætlaði með, átti að fara í loftið. Það var því engin grímuskylda á þessum tíma skv. þýskum sóttvarnarlögum, burt sér frá einhverjum reglum Icelandair eða samningum.
Þetta var ekki látið fylgja með viðtalinu sem Morgunblaðið tók við hana í viðtengdri frétt,(sem virðist hafa slitnað frá fréttinni) en þó er þetta mikilvægur punktur, lagalega séð.
Auk þess þarf samþykki flugstjóra til að vísa farþega úr flugvél. Veitti hann samþykki? Skv. Margréti, sem talaði við flugstjórann sem aldrei kom fram, sagði hann að flugfreyjurnar réðu þessu. Sem er rangt, samþykki flugstjóra þarf til.
Það er auðvelt að búa til vandræði ef þú neitar farþega að hafa hjá sér handfarangur, með dýrum búnaði, eins og hann á rétt á, og ljúga því að taskan sé of stór og ekki pláss fyrir hana. Taskan var minni en leyfileg stærð handfarangurs skv. reglum Icelandair. Og það var nóg pláss. Hver yrði sáttur með þannig framkomu?
Tvennum sögum fer af því hvers vegna Margrét var rekin út, segir Ólafur blaðamaður í fréttinni. Hver er hin sagan eða frásagnar-eða heimildarmaður?
p.s. hvers vegna er Ólafur blaðamaður, eins og hann kynnti sig, ekki skrifaður fyrir þessari frétt? Bara nafnlaus pistill, ekkert netfang?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2022 | 13:59
Er saltvatnið öruggara? Forstjóri lyfjafyrirtækis greiddi offjár fyrir að sleppa bóluefninu
José Maria Fernandez Sousa-Faro, forstjóri evrópska lyfjarisans PharmaMar, hefur verið kærður af lögreglu fyrir að vera með falsað Covid-19 bólusetningavottorð.
Dr. Sousa-Faro er meðal yfir 2.200 manna á lista sem landslögreglan hefur tekið saman yfir þá sem fengu ekkert bóluefni en eru skráðir sem bólusettir í heilbrigðiskerfi landsins. Á listanum eru mörg þekkt andlit og fólk sem tilheyrir yfirstéttinni.
Dr. Sousa-Faro tók þátt í að rannsaka Covid-19 bóluefnin og geta það varla talist góð meðmæli að forstjórinn hafi frekar viljað saltvatn og borgað fyrir það offjár.
Lögreglan heldur því fram að Sousa-Faro hafi séð um að láta sprauta sig með saltlausn í stað Covid-19 bóluefnis og greitt þúsundir dollara fyrir að láta bæta nafni sínu á bólusetningarskrá Spánar, eins og staðfest var af lögreglunni og greint frá af El Periodico de Espana.
Nánar.
AstraZeneca brigslað um taugasjúkdóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.5.2022 | 13:52
Slegist um bólusóttarbóluefnið - really?
Sóttvarnarlæknir kann að láta hutina hljóma spennandi. Gæti líklega selt ömmu sína. Hvenær kemur svo hjarðónæmið?
Hver er að slást um þetta efni sem örfáár hræður eru að smitast af, vægur sjúkdómur' Þetta bóluefni er það bóluefni sem sem hefur sterkustu tengslin við hjartabólgur (greinin er birt 2018, áður en Covid byrjaði þannig að þau efni eru ekki með).
,,Hérlendis eru til bóluefni gegn bólusótt, en þeim fylgja miklar aukaverkanir og yrðu því aldrei notuð. Hann segir að nú sé komin þriðja kynslóðin af þessum bóluefnum, sem hafi óverulegar aukaverknair og virki ágætlega," sagði Þórólfur. Hann sagði það líka með Covid-bóluefnin en þau hafa slegið öll met í aukaverkunum.
Sem sagt komin ný bóluefni strax við faraldri sem hafði veri útrýmt.
Og hvers vegna erum við hangandi i ESB með þessi lyfjakaup - erum við gengin í sambandið?
Bóluefni gegn apabólu kemur til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 31.5.2022 kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.5.2022 | 22:57
Hefur hún fengið Covid-bóluefni?
Það sem var mjög auðvelt áður er mikið verk núna. Ég hef átt erfitt með að fara út að labba í tíu mínútur eða út í búð. Ég er að upplifa einkenni eins og ljósfælni, er viðkvæm fyrir hávaða, heilaþoku, hausverk, svima og hraðan hjartslátt, segir Ragnheiður og bætir við að einkennin séu mjög mismunandi eftir dögum og vikum.
Hefur Ragnheiður, eins og flest íþróttafólk fengið Covid-bóluefni og svo Covid ofan í það?
Lýsingin er svipuð en þó ekki alveg jafn slæm og hjá Margréti Ósk Guðbergsdóttir (og fleirum) sem hefur hefur verið lasin í 14 mánuði og fer versnandi:
Sjá frásögn hér.
Uppfært: Ragnheiður er þríbólusett og Mogginn segir EKKI ORÐ um það. Breska BBC útvarpskonan Jules Serkin sem þjáist af aukverkunum eftir Astra Zeneca vill meina að helstu miðlum hafi verið bannað að tala um aukaverkanir, sjá hér.
https://twitter.com/emalinedelapaix/status/1524135291195473921
Mikil streita olli miklum veikindum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.5.2022 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.3.2022 | 11:13
Dauðsföll tífaldast í Ísrael - sprautaðir þróað með sér alnæmi - er það sama að gerast hér?
Hér má hlusta á viðtal við úkraínska lækninn Dr. Zelenko þar sem hann segir frá því að dánartíðni í Ísrael sem hefur gefið fjórar sprautur af Covid bóluefni, hafi tífaldast frá því fyrir tveimur árum. Zelenko heldur því fram að margsprautaðir Ísraelar hafi í raun þróað með sér alnæmi og að annars milt afbrigði (ómíkrón) dragi fólk með ónýtt ónæmiskerfi til dauða. Það sama eigi ekki við t.d. í Bandaríkjunum og Afríku þar sem afbrigðið uppgötvaðist fyrst.
60% andlátanna orðið á þessu ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2022 | 14:39
Rispaða grammófónsplatan
,,Fjórði skammturinn af bóluefni gegn Covid-19 stendur nú ákveðnum hópi fólks til boða hérlendis. Hópurinn samanstendur af einstaklingum sem eru með ákveðna undirliggjandi sjúkdóma eða hafa ákveðnar ónæmisbælandi meðferðir á síðastliðnu ári eða tveimur árum."
Þetta hefst alltaf eins, alveg eins og með veikina, það átti bara að passa veika fólkið.
Og svo færa þau sig neðar...þar til þau eru búin að dæla 1,4 milljónum skammta af gervibóluefninu í mannskapinn sem búið er að hræða lítóruna úr og veikja ónæmiskerfið með endurteknum lyfjafgjöfum.
Fjórði skammturinn í boði fyrir afmarkaðan hóp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.1.2022 | 14:54
44% skólbarna, 5-11 ára, búin að fá bólusetningu og smitin aukast bara!
,,Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, segir mögulega tilefni til þess að skoða betur það sem hann kallar sérstakan faraldur meðal barna. Hann telur mikinn fjölda kórónuveirusmita meðal grunnskólabarna koma á óvart og það geti ekki talist sem eðlilegt frávik.
Þessir menn hanga í falsvísindunum. Smit aukast alltaf eftir bólusetningar með þessum ,,bóluefnum, sjáið Ísland (mynd neðar), þvílíkt flopp sem þessi lyf eru. Fylgjast þeir ekki með smittölum Íslands og sjá ákveðið mynstur? Um 44% í hópnum, 5-12 ára, eru skv. Covid.is búin að fá ,,bóluefnið" og 70-80%, 12-15 ára.
Síðan er búið að spritta börnin og halda þeim frá fólki og
öðrum börnum (sum þeirra farið alheilbrigð 6-7 sinnum í stofufangelsi!). Sumir foreldrar hafa gengið svo langt að einangra börn sín, hleypa þeim ekki í skólann.
M.ö.o. það er búið að veikja ónæmiskerfi barnanna með lyfjum og taugaveiklunarþrifnaði. ,,Af misjöfnu þrífast börnin best. Það eru hin einu sönnu vísindi og það vita menn eins og Aspelund en þykist ekkert vita því menn hafa selt sálu sína til geðsjúklinga sem stjórna heiminum.
Sjá má í hinum ýmsu spjallhópum að sprautuðu börnin eru að greinast með Covid stuttu síðar. Já, þvílík vísindi...og að leita eftir smitum eins og þeir eigi lífið að leysa!
Skoða þurfi sérstakan faraldur meðal barna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Maí 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2016
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Nóvember 2014
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- September 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
Bloggvinir
- aslaugas
- agny
- annaeinars
- danna
- agustkara
- bookiceland
- contact
- einarborgari
- rlingr
- sagamli
- helga-eldsto-art-cafe
- bofs
- sade
- gusg
- noldrarinn
- hafthorb
- hhbe
- hlf
- diva73
- snjolfur
- ingaghall
- ingolfursigurdsson
- kreppan
- jaj
- islandsfengur
- nonniblogg
- nyja-testamentid
- thjodarskutan
- kristinnp
- loncexter
- marinogn
- sighar
- sigurduringi
- sushanta
- viggojorgens
- vilhjalmurarnason
- thorsteinnhelgi
- valli57
- tbs